Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Björt Ólafsdóttir
6. þm. RN, Bf, BjÓ
Björt Ólafsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
18.06.2012
Ensk þýðing á skýrslu nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins

Skýrsla nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins (pdf) hefur verið þýdd á ensku og birt á vef Alþingis. Ensk þýðing skýrslunnar: Report of the Parliamentary Committee on the Strengthening of the Green Economy (pdf).

Nefndin sem var kosin af Alþingi til að kortleggja sóknarfæri íslensks atvinnulífs á sviði grænnar atvinnusköpunar, skv.
ályktun Alþingis, skilaði skýrslu um eflingu græna hagkerfisins 29. september 2011. Í nefndinni áttu sæti, Skúli Helgason, formaður, Arna Lára Jónsdóttir, Bergur Sigurðsson, Dofri Hermannsson, Guðný Káradóttir (kosin 8. desember 2010), Guðmundur Ragnar Guðmundsson, Guðmundur Steingrímsson, Illugi Gunnarsson og Salvör Jónsdóttir.

Í mars 2012 var samþykkt þingsályktun um eflingu græna hagkerfisins, ferill málsins, með tenglum í skjöl og ræður.





Fundur í utanríkismálanefnd opinn fréttamönnum
Utanríkismálanefnd hélt fund með utanríkismálaráðherra þann 18. október 2011. Fundurinn var opinn fréttamönnum. Fundurinn var sá fyrsti í 83 ára sögu utanríkismálanefndar sem opinn er fréttamönnum og jafnframt sá fyrsti með því lagi sem haldinn er í þingnefnd (gestafundur), skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr.laga um þingsköp Alþingis.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.