15.08.2012 Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 16. ágúst
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir árlegan fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn verður á Álandseyjum 16. ágúst 2012.
Þingforsetarnir munu ræða viðhorf í stjórnmálum á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum og það sem er efst á baugi í starfi þjóðþinganna. Einnig verður sérstök umræða um öryggismál í þjóðþingum og samvinnu í alþjóðastarfi þinganna.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sótti fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á Álandseyjum 16. ágúst 2012.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.