Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Lilja Rafney Magnúsdóttir
8. þm. NV, Vg, LRM
Lilja Rafney Magnúsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
10.09.2012
Fundur þingforseta evrópskra smáríkja í Svartfjallalandi, 10.-11. september

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 1. varaforseti Alþingis, sækir fund þingforseta evrópskra smáríkja sem haldinn er í bænum Kotor í Svartfjallalandi 10.-11. september 2012. Til fundarins er boðið forsetum þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins með færri en 1 milljón íbúa. Fundinn sækja fulltrúar Andorra, Íslands, Kýpur, Lúxemborgar, Möltu og San Marínó, auk gestgjafa í Svartfjallalandi. Þetta er 7. fundur þingforseta evrópskra smáríkja.

Fundarefni er að þessu sinni eftirlitshlutverk þjóðþinga, einkum eftirlit með öryggisstofnunum ríkisins, ásamt hlutverki þinganna við að efla erlenda fjárfestingu og styrkja fjármálakerfi smáríkja. Sérstakur gestafyrirlesari á fundi er Daniel P. Fata, fyrrverandi aðstoðarvarnamálaráðherra Bandaríkjanna.


Þingforsetar evrópskra smáríkja
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 1. varaforseti Alþingis, sótti fund þingforseta evrópskra smáríkja sem haldinn var í bænum Kotor í Svartfjallalandi 10.-11. september 2012.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.