17.09.2012 Fundur formanna utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna
Formenn utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna koma saman til fundar í Reykjavík 16.-17. september. Gestgjafi fundarins er Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, en samráðsfundir sem þessir eru haldnir til skiptis í ríkjunum átta.
Meginumræðuefni fundarins verða norðurskautsmál, ástandið í Miðausturlöndum, samvinna við grannsvæði í austri og ástandið í Hvíta-Rússlandi. Auk þess verður farið yfir forgangsmál og áherslur í starfi einstakra utanríkismálanefnda. Þá verður Hellisheiðarvirkjun heimsótt og efnt til sérstakrar málstofu um virkjun jarðvarma.
Á síðasta starfsdegi sínum sem forseti Alþingis afhenti Sturla Böðvarsson þeim Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni bókagjöf frá Alþingi í tilefni af 30 og 25 ára þingafmælum þeirra.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.