26.09.2012 Kynningarvefur um þjóðaratkvæðagreiðsluna 20. október 2012
Kynningarvefur um þjóðaratkvæðagreiðsluna 20. október nk., um tillögur stjórnlagaráðs og tengt efni, hefur verið opnaður. Slóðin er www.thjodaratkvaedi.is.
Á vefnum er að finna margvíslegt efni er lýtur að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem ætlað er að auðvelda kjósanda að taka upplýsta afstöðu til þeirra sex spurninga sem finna má á kjörseðlinum. Þar er að finna umfjöllun um spurningarnar, upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og rakin forsaga málsins. Þá er tillögum stjórnlagaráðs og texta stjórnarskrár Íslands stillt upp í samliggjandi dálkum þannig að hægt er að bera saman tillögur ráðsins og ákvæði stjórnarskrárinnar. Einnig eru tengingar í fjölmarga vefi sem geta veitt nánari upplýsingar um efnið eða eru vettvangur umræðu.
Til að auðvelda heyrnarskertum og sjóndöprum að kynna sér efni vefsins er aðgangur að upplestri og táknmálsþýðingu á öllu meginefninu. Sama efni er aðgengilegt á ensku auk þess sem birtar eru enskar þýðingar á tillögum stjórnlagaráðs og texta íslensku stjórnarskrárinnar.
Prentaður kynningarbæklingur verður sendur í pósti inn á hvert heimili landsins. Gert er ráð fyrir að honum verði dreift 1.-2. október nk. Bæklingurinn er aðgengilegur á forsíðu kynningarvefsins í pdf-útgáfu.
Kynningarvefurinn er í umsjón Lagastofnunar Háskóla Íslands og er efni hans unnið af stofnuninni að beiðni skrifstofu Alþingis. Vefurinn er settur upp af Athygli ehf.
Kjörbréfanefnd að störfum við upphaf 137. löggjafarþings þegar kjörbréf aðalmanna og jafnmargra varamanna voru rannsökuð. Af 27 nýjum þingmönnum höfðu 20 ekki tekið sæti á Alþingi áður.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.