26.09.2012 Breyting á skipan rannsóknarnefndar um sparisjóðina
Forseti Alþingis féllst hinn 20. september sl. á ósk Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara frá 5. september sl. um lausn frá starfi formanns rannsóknarnefndar um sparisjóðina. Sigríður hefur snúið til fyrri starfa sem héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag greindi forseti Alþingis jafnframt frá því að hann hefði skipað Hrannar Má S. Hafberg, lögfræðing, formann nefndarinnar. Hrannar lauk meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands í febrúar 2008. Auk þess að hafa verið settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og starfað við dómstóla í fjögur ár hefur Hrannar sinnt kennslu við lagadeild Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Hrannar hefur að undanförnu starfað fyrir rannsóknarnefnd um sparisjóðina.
Þingsetning hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.