01.10.2012 Heimsókn utanríkismálanefndar til Kanada 1.-5. október
Dagana 1.-5. október verður utanríkismálanefnd Alþingis í Kanada og heimsækir Ottawa og Winnipeg. Tilgangur heimsóknarinnar er að ræða samstarf við Kanadamenn á sviði norðurslóðamála, viðskipta og menningar. Í Ottawa mun nefndin m.a. funda með systurnefndum sínum í kanadíska þinginu og utanríkisráðuneyti. Í Winnipeg á nefndin fundi með forsætisráðherra og nýsköpunar- og viðskiptaráðherra Manitobafylkis auk þess að hitta fulltrúa samfélags Vestur-Íslendinga.
Eftirtaldir nefndarmenn fara í ferðina: Árni Þór Sigurðsson formaður, Bjarni Benediktsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Bjarnason, Ragnheiður E. Árnadóttir, Róbert Marshall og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, tók á móti forseta norska Stórþingsins, Dag Terje Andersen, ásamt sendinefnd í Alþingishúsinu þann 20. febrúar 2013.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.