Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ásmundur Friðriksson
7. þm. SU, S, ÁsF
Ásmundur Friðriksson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
02.10.2012
Fundur kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins í Nýju Delí, 3.-4. október

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir 7. fund kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins í Nýju Delí 3.-4. október í boði Meiru Kumar, forseta indverska þingsins. Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum Alþjóðaþingmannasambandsins. Aðild að sambandinu eiga 162 þjóðþing og gegna konur starfi þingforseta í 37 þjóðþingum í heiminum.

Fundarefni að þessu sinni eru meðal annars breytingar á þátttöku kvenna í stjórnmálum, hvernig haga má skipulagi þjóðþinga til að auðvelda hlutdeild kvenna í stjórnmálum, hlutverk kvenþingforseta, auk fleiri fundarefna. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu fundarins.


Fundur kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, stýrði fundi kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins í indverska þinginu, í Nýju Delí, 3. október 2012.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.