Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Vilhjálmur Árnason
9. þm. SU, S, VilÁ
Vilhjálmur Árnason

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
11.10.2012
Bréf formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis til Ríkisendurskoðanda

Bréf formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis til Ríkisendurskoðanda. Sent í tilefni af umræðu um úttekt Ríkisendurskoðunar á fjárhags-og mannauðskerfi ríkisins (Oracle). Óskað er eftir að svör við þeim spurningum sem bornar eru upp í bréfinu berist fyrir 16. október nk.

Spurningarnar eru eftirfarandi:

1. Gerir ríkisendurskoðandi starfsáætlun um þau verkefni sem eðli máls samkvæmt eru ekki reglubundin?
a. til hve langs tíma?
b. hve oft er áætlunin endurskoðuð?

2.
Hafa skýrslur er varða fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Oracle) verið á starfsáætlun Ríkisendurskoðunar? Ef svo er, hversu miklum mannafla (mannmánuðum) var ætlað að sinna verkefninu á ári hverju frá því vinna við úttektina hófst?

3.
Hefur Alþingi verið gert viðvart um tafir eða ákvörðun um að fresta vinnu eða skilum á úttekt á innleiðingu og/eða uppfærslu á Oracle-kerfinu?
a. ef já – hvenær?
b. ef nei – hvers vegna ekki?

4.
Á heimasíðu Ríkisendurskoðunar er birtur listi um „úttektir í vinnslu“.
a. Hefur vinna er varðar úttekt á Oracle verið á þessum lista?
b. Eru skýrslur/úttektir nú í vinnslu hjá embættinu, sem ekki eru á listanum?
c. Hvaða viðmið eru höfð um hvaða verkefni eru skráð á þennan lista?

5.
Hefur Ríkisendurskoðun sett viðmið um vinnslutíma úttekta/skýrslna og ef svo er, hvert er það?

6.
Hvaða reglur gilda hjá embættinu um upplýsingagjöf til Alþingis meðan á úttekt stendur? Hafa komið upp þau tilfelli að Ríkisendurskoðun hafi talið nauðsynlegt að gera þinginu viðvart um tilteknar niðurstöður sínar enda þótt skýrslugerð hafi ekki verið lokið?

Kjörbréfanefnd
Kjörbréfanefnd að störfum við upphaf 137. löggjafarþings þegar kjörbréf aðalmanna og jafnmargra varamanna voru rannsökuð. Af 27 nýjum þingmönnum höfðu 20 ekki tekið sæti á Alþingi áður.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.