14.10.2012 Fundur formanna Evrópunefnda þjóðþinga ESB (COSAC) 14.-16. október
Fulltrúar Evrópunefnda þjóðþinga ESB-ríkjanna, umsóknarríkja og Evrópuþingsins koma saman til fundar í Nikósíu á Kýpur dagana 14.-16. október 2012. Helstu dagskrárefni fundarins eru formennskuáætlun Kýpverja í ráðherraráði ESB, viðbrögð og endurreisn fjármálakerfisins í kjölfar kreppunnar og málefni innri markaðarins. Fundir COSAC fara fram í þeim aðildarríkjum sem fara með sex mánaða formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins.
Af hálfu utanríkismálanefndar sækja fundinn að þessu sinni Árni Þór Sigurðsson formaður og Ólöf Nordal.
Árlega taka upplýsingafulltrúar skrifstofu Alþingis á móti rúmlega 5000 gestum í Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.