15.10.2012 Svarbréf ríkisendurskoðanda til forseta Alþingis um skýrslu um fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins
Forsætisnefnd fjallaði á fundi sínum í hádeginu um bréf ríkisendurskoðanda frá 8. október 2012. Bréfið var svar við bréfi forseta Alþingis sem sent var í framhaldi af umræðum sem orðið hafa á Alþingi og í fjölmiðlum um kaup ríkisins á fjárhags- og mannauðskerfi (Oracle) á árinu 2001, innleiðingu þess og rekstur síðan þá. Eins og fram hefur komið var ákveðið að gera bréfið opinbert að lokinni umfjöllun.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kynnti starfsemi tveggja rannsóknarnefnda Alþingis, sem eru að taka til starfa, ásamt formönnum þeirra þann 27. september 2011. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari og formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.