Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ögmundur Jónasson
8. þm. SV, Vg, ÖJ
Ögmundur Jónasson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
19.10.2012
Málefni Ríkisendurskoðunar

Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, og ríkisendurskoðandi, Sveinn Arason, hafa ákveðið að úttekt á Ríkisendurskoðun, sem hollenska ríkisendurskoðunin og þær norska og sænska standa að þessa mánuðina, verði hraðað, og henni skilað til Alþingis og Ríkisendurskoðunar sem allra fyrst. Er þess vænst að þar verði m.a. farið yfir þau mál sem til umræðu hafa verið síðustu vikur í tengslum við starf stofnunarinnar.

Þetta er gert til að tryggja að trúnaðartraust ríki milli þingmanna og stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun, hin mikilvæga eftirlitsstofnun Alþingis með framkvæmdarvaldinu, verður að njóta óskoraðs trausts þingsins og þingmanna.

Forseti Alþingis mun beita sér fyrir því að á fjáraukalögum þessa árs verði fjárheimild til að mæta kostnaði við þessa úttekt og kostnaði sem stafar af þeim forgangi sem úttektin á að hafa.

Forseti treystir því að úttektin verði til þess að traust og friður ríki um þessa mikilvægu og sjálfstæðu stofnun sem Ríkisendurskoðun er.

Kjörbréfanefnd
Kjörbréfanefnd að störfum við upphaf 137. löggjafarþings þegar kjörbréf aðalmanna og jafnmargra varamanna voru rannsökuð. Af 27 nýjum þingmönnum höfðu 20 ekki tekið sæti á Alþingi áður.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.