22.10.2012 Forseti Alþingis í opinberri heimsókn í Þýskalandi 22.-26. október 2012
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Þýskalandi dagana 22.-26. október 2012 í boði dr. Norberts Lammerts, forseta þýska þingsins. Með forseta í för verða alþingismennirnir Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Magnús Orri Schram og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Jörundi Kristjánssyni alþjóðaritara.
Í Berlín munu forseti og þingmenn eiga fundi með forseta þýska þingsins, utanríkismálanefnd, Evrópunefnd, þýsk-norræna vináttuhópi þýska þingsins og aðstoðarutanríkisráðherra Þýskalands.
Þá mun sendinefndin heimsækja Hamborg og funda með fulltrúum íslenskra fyrirtækja í höfuðstöðvum Eimskips. í Hamborg munu forseti og sendinefnd jafnframt eiga fund með forseta þings sambandslandsins og borgarstjóra.
Forseti og sendinefndin heimsækja enn fremur Dresden þar sem fundur verður með þingforseta sambandslandsins og aðstoðarforsætisráðherra Saxlands.
Dr. Norbert Lammert, forseti þýska þingsins, var í opinberri heimsókn á Íslandi í mars á síðasta ári og er heimsókn forseta Alþingis og þingmanna liður í að efla tvíhliða samskipti þjóðþinganna og landanna, en í ár eru 60 ár frá því að stofnað var til stjórnmálasambands við Þýskaland.
Frá vinstri; Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Berlín, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Magnús Orri Schram, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, dr. Norbert Lammert, forseti þýska þingsins, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.