30.10.2012 Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með umboðsmanni Alþingis 1. nóvember - bein útsending
Opinn fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis með umboðsmanni Alþingis fimmtudaginn 1. nóvember kl. 10.00-12.00. Fjallað verður um ársskýrslu umboðsmanns Alþingis vegna ársins 2011 (pdf). Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Gestir fundarins eru Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis, Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri og Særún María Gunnarsdóttir lögfræðingur.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Þess var minnst með hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu þann 8. júlí 2012 að þá voru liðin 90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.