09.11.2012 Ársfundur NATO-þingsins 9.-12. nóvember
NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Prag 9.–12. nóvember 2012. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan, ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum auk sjóræningja og viðbrögð NATO og alþjóðasamfélagsins við þeirri ógn. Einnig verður rætt um norðurslóðamál, samskipti NATO og Rússlands og upptök og afleiðingar evrukrísunnar.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækir fundinn Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður.
Þingsetning hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.