20.11.2012 Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins 21.-22. nóvember
Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins kemur saman til fundar í Evrópuþinginu í Strassborg 21.-22. nóvember 2012. Á dagskrá fundarins eru samskipti Íslands og ESB með áherslu á stöðu yfirstandandi aðildarviðræðna auk þess sem fjallað verður um sjávarútvegsmál, viðbrögð stjórnvalda í ESB og á Íslandi við fjármálakreppunni og ástandið í Norður-Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs.
Af hálfu Alþingis sækja fundinn Skúli Helgason, formaður sendinefndar, Birgitta Jónsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Bjarnason, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu er sameiginlegri þingmannanefnd Evrópuþingsins og þjóðþings viðkomandi umsóknarríkis komið á fót. Hlutverk slíkrar nefndar er einkum að fylgjast með aðildarviðræðuferlinu. Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins var stofnuð í október 2010. Nefndin er skipuð níu þingmönnum frá Evrópuþinginu og níu alþingismönnum. Auk þess situr sérstakur fulltrúi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, sem fylgist með umsóknarferli Íslands, fundi nefndarinnar. Sameiginlega þingmannanefndin kemur saman tvisvar á ári, til skiptis á Íslandi og í starfsstöðvum Evrópuþingsins í Brussel eða Strassborg.
Fyrrverandi forsetar Alþingis komu í heimsókn í Alþingishúsið 21. febrúar 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.