22.01.2013 Tvær sérstakar umræður miðvikudaginn 23. janúar 2013
Miðvikudaginn 23. janúar kl. 3.30 síðdegis verða sérstakar umræður um fjárhagsstöðu íslenskra heimila. Málshefjandi er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og til andsvara verður forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir. Miðvikudaginn 23. janúar kl. 4 síðdegis verða sérstakar umræður um raforku, fjarskipta- og samgöngumál Vestfirðinga. Að umræðubeiðninni standa Ólína Þorvarðardóttir og Einar K. Guðfinnsson. Til andsvara verður innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson.
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands, sem stofnaður var í þinghúsinu, einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst. Rúmlega 3000 gestir komu í heimsókn.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.