Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Oddný G. Harðardóttir
6. þm. SU, Sf, OH
Oddný G. Harðardóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
15.02.2013
90 ár frá því að fyrsta konan tók sæti á Alþingi

Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, minntist þess við upphaf þingfundar að í dag, 15. febrúar, eru liðin rétt 90 ár frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri, tók sæti á Alþingi. Í ávarpi sínu sagði þingforseti:

Í dag, 15. febrúar, eru liðin rétt 90 ár frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri, gekk inn í þennan sal sem kjörinn alþingismaður.

35. löggjafarþing var sett fimmtudaginn 15. febrúar 1923. Fjórum dögum síðar var kjörbréf Ingibjargar samþykkt og hún vann eið að stjórnarskránni. Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á Alþingi í landskjöri sumarið áður, 8. júlí 1922.

Í framsöguræðu sinni fyrir áliti kjörbréfanefndar sagði Jóhannes Jóhannesson m.a.:
"Þetta verður í fyrsta sinn sem kona tekur sæti á Alþingi, og ég vil láta í ljós gleði mína fyrir þeim atburði. Ég óska háttv. 6. landskjörnum þingmanni, Ingibjörgu H. Bjarnason, farsældar og ánægju í starfi sínu og þess að hluttaka kvenna í löggjafarstarfinu megi verða landi og lýð til blessunar."

Nú, 90 árum síðar, getum við með fullri vissu sagt að sú ósk framsögumannsins hafi sannarlega ræst.

Í tilefni þessa dags er á veggnum hér fyrir aftan forseta málverk eftir Gunnlaug Blöndal í eigu Alþingis af Ingibjörgu H. Bjarnason.
Íslenskum konum óska ég til hamingju með daginn og raunar Íslendingum öllum.


90 ár frá því að fyrsta konan tók sæti á Alþingi
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, minntist þess á þingfundi að í febrúar 2013 eru 90 ár liðin frá því að fyrsta konan, Ingibjörg H. Bjarnason, tók sæti á Alþingi.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.