Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
19.02.2013
Opinber heimsókn forseta norska Stórþingsins 20.–22. febrúar 2013

Forseti norska Stórþingsins, Dag Terje Andersen, verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 20.-22. febrúar 2013, í boði forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur. Með honum í för eru þingmennirnir Per-Kristian Foss, Lillian Hansen og Snorre Serigstad Valen, ásamt embættismönnum norska Stórþingsins.

Forseti Stórþingsins og sendinefnd munu eiga fund með forseta Alþingis og utanríkismálanefnd. Jafnframt mun sendinefndin hitta að máli formenn þingflokka og forsætisnefnd Alþingis.

Þá munu forseti Stórþingsins og sendinefnd sækja heim forseta Íslands að Bessastöðum. Þau munu einnig eiga fund með forsætisráðherra, atvinnuvegaráðherra og fulltrúum atvinnulífsins á meðan á dvölinni stendur.


Opinber heimsókn forseta norska Stórþingsins
Forseti Stórþingsins, Dag Terje Andersen, og sendinefnd heimsóttu Alþingi og áttu fund með forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, þann 20. febrúar 2013.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.