Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Karl Garðarsson
8. þm. RS, F, KG
Karl Garðarsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
24.06.2005
Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2005-2006

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá 1. september 2005 til 31. ágúst 2006.

Í úthlutunarnefndinni eiga sæti Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og dr. Jakob Yngvason prófessor. Ritari nefndarinnar er Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.

Alls bárust nefndinni 28 umsóknir að þessu sinni.
Ellefu fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:
Bergljót S. Kristjánsdóttir til að rannsaka Gerplu, svo og dróttkvæðar vísur.
Dagný Kristjánsdóttir til að rannsaka einkenni barnabóka.
Gunnlaugur A. Jónsson til að kanna upphaf sögulegra biblíurannsókna á Íslandi 1890-1920 í ljósi danskra og skandinavískra áhrifa.
Halldór Guðmundsson til að undirbúa rit um líf tveggja skálda, Gunnars Gunnarssonar og Þórbergs Þórðarsonar.
Halldóra Jónsdóttir til að vinna við íslensk-danska skólaorðabók.
Hrafnhildur Schram til að kanna verk Júlíönu Sveinsdóttur listmálara.
Kristján Jóhann Jónsson til að afla efnis í rit um Grím Thomsen - þjóðskáld og heimsborgara.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir til að rannsaka ævi og störf Ólafíu Jóhannsdóttur.
Sigríður Matthíasdóttir til að rannsaka gögn um þjóðernishugmyndir Jóns Aðils sagnfræðings.
Þorleifur Hauksson til að undirbúa útgáfu Sverrissögu.
Þorsteinn Helgason til að rannsaka gögn um Tyrkjaránið.

Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.




Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2013
Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og aðalræðumaður á Hátíð Jóns Sigurðssonar 2013, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, og Stefán Blöndal, sonur verðlaunahafans, Erlings Blöndals Bengtssonar, sem veitti verðlaunum viðtöku fyrir hönd föður og flutti kveðju hans.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.