Skipting landsins í átta kjördæmi var sú sama frá 1959 til 1999. Í
lögum um kosningar til Alþingis
frá 1987 má finna nákvæm mörk kjördæmanna. Þessi lög féllu úr gildi í maí 2000.
Samkvæmt kjördæmaskipan sem kosið var eftir í síðasta sinn í maí 1999 skiptust þingsæti þannig niður á kjördæmi
RV |
Reykjavík 19 þm.(4 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Reykjavík. Stofnað 1959. Föst þingsæti 19. |
RN |
Reykjanes 12 þm. (3 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslu, Mosfellsbæ, Seltjarnarnes, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð, Njarðvík, Keflavík og Grindavík. Stofnað 1959. Föst þingsæti 12. |
VL |
Vesturland 5 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu, Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, Dalasýslu, Akranes, Borgarnes og Ólafsvík. Stofnað 1959. Föst þingsæti 5. |
VF |
Vestfirðir 5 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Austur-Barðastrandarsýslu og Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu og Norður-Ísafjarðarsýslu, Strandasýslu, Bolungarvík og Ísafjörð. Stofnað 1959. Föst þingsæti 5. |
NV |
Norðurland vestra 5 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Vestur-Húnavatnssýslu, Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu, Blönduós, Sauðárkrók og Siglufjörð. Stofnað 1959. Föst þingsæti 5. |
NE |
Norðurland eystra 6 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Eyjafjarðarsýslu, Suður-Þingeyjarsýslu og Norður-Þingeyjarsýslu, Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörð og Húsavík. Stofnað 1959. Föst þingsæti 6. |
AL |
Austurland 5 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Norður-Múlasýslu, Suður-Múlasýslu og Austur-Skaftafellssýslu, Seyðisfjörð, Neskaupstað og Eskifjörð. Stofnað 1959. Föst þingsæti 5. |
SL |
Suðurland 6 þm. (1 jöfnunarsæti). |
| Kjördæmi sem nær yfir Vestur-Skaftafellssýslu, Rangárvallasýslu og Árnessýslu, Vestmannaeyjar og Selfoss. Stofnað 1959. Föst þingsæti 6. |
| Óbundið |
|
Eitt þingsæti var skv. kosningalögum óbundið kjördæmi í tvennum kosningum, 1987 og 1991. Í fyrra sinn kom sætið í Vesturlandskjördæmi, en í síðara sinn í Vestfjarðakjördæmi. Með breytingum á kosningalögum 1995 var reglum breytt þannig að sætið fór í Reykjaneskjördæmi fyrir kosningarnar það ár. |
| LA
Landskjörinn (fyrir 110. löggjafarþing.) |