Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Jóhanna María Sigmundsdóttir
7. þm. NV, F, JMS
Jóhanna María Sigmundsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Um reglur um hagsmunaskráningu

Reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings voru afgreiddar frá forsætisnefnd 16. mars 2009 og endanlega samþykktar í forsætisnefnd 23. mars. Endurskoðaðar reglur voru samþykktar 28. nóvember 2011 og eru þær birtar á vef Alþingis. Reglurnar eru samdar með hliðsjón af reglum sem gilda um þetta efni í danska þinginu.

Skráning þessi er kjósendum til upplýsingar og er ætlað að auka gagnsæi í störfum Alþingis. Skráðir hagsmunir hafa engin formleg áhrif á störf alþingismanna umfram það sem þingmenn sjálfir kjósa, enda eru alþingismenn í störfum sínum eingöngu bundnir við sannfæringu sína, sbr. 48. gr. stjórnarskrár, og standa aðeins kjósendum skil gerða sinna í almennum kosningum. Þeir eru ekki bundnir af hæfisreglum hliðstæðum þeim sem gilda um stjórnsýsluna eða dómendur í störfum sínum að öðru leyti en því að skv. 3. mgr. 71. gr. þingskapa má enginn þingmaður greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfs sín.

Alþingismenn geta því tekið þátt í meðferð og afgreiðslu mála á þinginu óháð hagsmunatengslum. Það er ein af grundvallarreglum í stjórnmálum lýðræðisríkja að þingmenn taki ákvarðanir um hvaða hagsmuni á að taka fram yfir aðra. Séu þeir tengdir þeim persónulega er þeim í sjálfsvald sett að segja sig frá máli. Það er þeirra ákvörðun og á þeirra ábyrgð.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.