Til heilbrigðis- og trygginganefndar var m.a. vísað málum er varða almenn heilbrigðismál, heilsugæslu, heilsuvernd,
sjúkrahús, heilsuhæli, hjúkrunar- og dvalarheimili, fatlaða, lyf, lyfsala, málefni heilbrigðisstarfsmanna,
landlækni, áfengis- og vímuefnavarnir, bindindisstarfsemi, almannatryggingar, félagslega aðstoð, Tryggingastofnun
ríkisins og réttindi sjúklinga. Á málefnasviði nefndarinnar voru t.d. lög um heilbrigðisþjónustu,
almannatryggingalög, lög um málefni aldraðra, lög um fæðingarorlof, læknalög, lög um dánarvottorð, lög um
áfengis- og vímuvarnaráð, sóttvarnalög, lög um réttindi sjúklinga, lög um félagslega aðstoð, lyfjalög, lög um
tóbaksvarnir og lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði.