Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
3. þm. SV, S, RR
Ragnheiður Ríkharðsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins

Eftirtaldir þingmenn skipa þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins af hálfu Alþingis 2013 - 142. löggjafarþing


Aðalmenn:

Nefndarritari: Stígur Stefánsson stjórnmálafræðingur,

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins

Þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu er sameiginlegri þingmannanefnd Evrópuþingsins og þjóðþings viðkomandi umsóknarríkis ætíð komið á fót. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með umsóknar- og aðildarviðræðuferlinu.

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins hélt stofnfund sinn 5. október 2010. Nefndin er skipuð níu þingmönnum frá Evrópuþinginu og níu Alþingismönnum. Af hálfu Alþingis sitja fimm nefndarmenn úr Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA og fjórir nefndarmenn úr utanríkismálanefnd í hinni sameiginlegu þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins. Auk þess situr sérstakur fulltrúi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, sem fylgist með umsóknarferli Íslands, fundi nefndarinnar. Sameiginlega þingmannanefndin kemur saman tvisvar á ári, til skiptis á Íslandi og í starfsstöðvum Evrópuþingsins í Brussel eða Strassborg.

Hin sameiginlega þingmannanefnd tekur fyrir einstök málefni sem varða samskipti Íslands og Evrópusambandsins og þá sérstaklega aðildarviðræðuferlið, og getur hún sent frá sér tilmæli þeim viðvíkjandi. Tilmæli verða aðeins samþykkt með því að meiri hluti fulltrúa jafnt Evrópuþingsins sem Alþingis veiti þeim stuðning. Tilmælum sameiginlegu þingmannanefndarinnar er beint til Evrópuþingsins, framkvæmdastjórnar og ráðherraráðs Evrópusambandsins, Alþingis og ríkisstjórnar Íslands. Alla jafna sitja fulltrúar ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar og ráðherraráðs Evrópusambandsins fundi sameiginlegu þingmannanefndarinnar. Á vettvangi nefndarinnar gefst Alþingismönnum því kostur á að eiga formbundnar og milliliðalausar viðræður við framkvæmdastjórn og ráðherraráð ESB um umsóknarferli Íslands. Nefndin er því mikilvægur vettvangur fyrir Alþingismenn til að rækja samráðs- og eftirlitshlutverk sitt meðan á umsóknarferlinu stendur.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.