Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Vilhjálmur Bjarnason
9. þm. SV, S, VilB
Vilhjálmur Bjarnason

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins


Eftirtaldir þingmenn skipa Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2013 - 142. löggjafarþing


Aðalmenn:


Nefndarritari: Arna Gerður Bang stjórnmálafræðingur,

Alþjóðaþingmannasambandið (Inter-Parliamentary Union, IPU)


Markmið, uppbygging og starfsemi Alþjóðaþingmannasambandsins

Alþjóðaþingmannasambandið (IPU) var stofnað árið 1889 og hefur síðan verið meginvettvangur alþjóðasamstarfs þingmanna. Flest þjóðþing heims eiga aðild að sambandinu. Í mars 2011 áttu 155 ríki aðild að Alþjóðaþingmannasambandinu, auk níu aukaaðildarríkja. Alþingi hefur átt aðild að sambandinu frá 1951.

Í lögum sambandsins segir að markmið þess sé að vinna að friði og samstarfi meðal þjóða og treysta lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing í sessi. Það skal m.a. gert með því að örva samskipti og samstarf þingmanna allra þjóða, skiptast á skoðunum um alþjóðleg málefni, standa vörð um mannréttindi í heiminum og auka þekkingu á störfum þjóðþinga heimsins. Alþjóðaþingmannasambandið á gott samstarf við Sameinuðu þjóðirnar og ýmis svæðisbundin þingmannasamtök. Sambandið fékk á árinu 2002 áheyrnaraðild að Sameinuðu þjóðunum og rétt til að dreifa skjölum sínum á allsherjarþinginu.

Alþjóðaþingmannasambandið heldur þingfundi tvisvar sinnum á ári. Á milli þingfunda stendur sambandið fyrir margvíslegum ráðstefnum, oft í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar eða stofnanir þeirra. Ráð IPU, sem skipað er þremur fulltrúum hvers aðildarríkis, fer með æðsta vald í innri málum sambandsins. Starfi IPU stýrir 17 manna framkvæmdastjórn, skipuð 15 þingmönnum sem kjörnir eru sérstaklega til setu í stjórninni, forseta IPU og formanni kvennanefndar IPU. Á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins starfa pólitískir svæðahópar. Íslandsdeildin á aðild að Tólfplús-hópnum, sem skipaður er þingmönnum frá flestum Evrópuríkjum, auk Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Ísraels. Þá eiga Evrópuþingið og Evrópuráðsþingið aukaaðild að hópnum, og Serbía og Svartfjallaland. Svæðahóparnir taka afstöðu til einstakra mála, tilnefna til trúnaðarstarfa og í nefndir. Innan IPU starfa þrjár fastanefndir: friðar- og öryggismálanefnd, nefnd um sjálfbæra þróun, efnahags- og viðskiptamál og lýðræðis- og mannréttindanefnd, auk nefndar um málefni Sameinuðu þjóðanna. Einnig starfa nokkrar sérstakar nefndir og vinnuhópar að einstökum málum, t.d. nefnd um mannréttindi þingmanna og nefnd um málefni Mið-Austurlanda.

Frekari upplýsingar um uppbyggingu og starfsemi Alþjóðaþingmannasambandsins má finna á heimasíðu samtakanna á slóðinni http://www.ipu.org.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.