Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Magnús Orri Schram
7. þm. SV, Sf, MSch
Magnús Orri Schram

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Konur á Alþingi

Konur hlutu kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis með stjórnarskrárbreytingu sem staðfest var 19. júní 1915. Þeim rétti gátu þær fyrst beitt við kosningar 1916, í landskjörinu 5. ágúst það ár og síðar í kjördæmakosningunum 21. október um haustið. Bríet Bjarnhéðinsdóttir var þá kjörin varamaður landskjörinna en tók aldrei sæti á Alþingi.

Fyrst var kona kjörin til Alþingis í landskjörinu 8. júní 1922. Það var Ingibjörg H. Bjarnason af Kvennalista. Hún gekk svo í raðir íhaldsmanna og síðar sjálfstæðismanna. Ingibjörg var 2. varaforseti efri deildar 1925–1927. Guðrún Lárusdóttir varð fyrst kvenna til að hljóta kosningu í almennum alþingiskosningum, þ.e. 1934, en hafði áður verið landskjörin 1930.

Lengstu þingsetu kvenna á Jóhanna Sigurðardóttir, en hún hefur setið á Alþingi samfellt síðan 1978, 30 ár og 10 mánuði (miðað við kjördag 1978 og 2009).

Fyrst kvenna til að hljóta kosningu sem forseti (aðalforseti) var Ragnhildur Helgadóttir, hún var kjörin forseti Nd. 1961–1962 og á ný 1974–1978. Salome Þorkelsdóttir var kjörin forseti Ed. 1983–1987, og síðar forseti Sþ. 1991 og fyrsti forseti Alþingis 1991–1995 (eftir afnám deildaskiptingar 1991). Guðrún Helgadóttir var kjörin forseti sameinaðs Alþingis 1988–1991, fyrst kvenna til að verða fyrirsvarsmaður Alþingis.

Í eftirfarandi skrá er yfirlit yfir þær konur sem átt hafa fast sæti á Alþingi á hverju kjörtímabili síðan 1916 ásamt hlutfalli þeirra af þingmannafjöldanum. Breytingar eru sýndar innan kjörtímabils ef konur taka sæti aðalmanns og jafnframt breytt hlutfall af þingmannahópnum ef þær taka sæti karls. Þess skal getið að Ingibjörg H. Bjarnason og Guðrún Lárusdóttir eru ekki kosnar á almennum kjördögum við upphaf kjörtímabils fram til 1934, heldur í landskjöri sem fór fram á öðrum tíma, Ingibjörg 1922 og Guðrún 1930.

Í alþingiskosningunum 25. apríl 2009 náðu 27 konur kjöri og varð hlutfall kvenna á þingi þá 42,9%.

1916-1919
Engin 0%

1919-1923
Ingibjörg H. Bjarnason (kosin 1922) 2,4%

1923-1927
Ingibjörg H. Bjarnason 2,4%

1927-1931
Ingibjörg H. Bjarnason (to 1930) 2,4%
Guðrún Lárusdóttir (kosin 1930) 2,4%

1931-1933
Guðrún Lárusdóttir 2,4%

1933-1934
Guðrún Lárusdóttir 2,4%

1934-1937
Guðrún Lárusdóttir 2,0%

1937-1942 Guðrún Lárusdóttir 2,0%
Eftir andlát Guðrúnar Lárusdóttur 1938 0%

1942
Engin 0%

1942-1946
Engin 0%

1946-1949
Katrín Thoroddsen 1,9%

1949-1953
Kristín L. Sigurðardóttir 3,8%
Rannveig Þorsteinsdóttir

1953-1956
Engin 0%

1956-1959
Ragnhildur Helgadóttir 1,9%

1959
Ragnhildur Helgadóttir 1,9%

1959-1963
Auður Auðuns 3,3%
Ragnhildur Helgadóttir

1963-1967
Auður Auðuns 1,7%

1967-1971
Auður Auðuns 1,7%

1971-1974
Auður Auðuns 5,0%
Ragnhildur Helgadóttir
Svava Jakobsdóttir

1974-1978
Ragnhildur Helgadóttir 5,0%
Sigurlaug Bjarnadóttir
Svava Jakobsdóttir

1978-1979
Jóhanna Sigurðardóttir 5,0%
Ragnhildur Helgadóttir
Svava Jakobsdóttir

1979-1983
Guðrún Helgadóttir 5,0%
Jóhanna Sigurðardóttir
Salome Þorkelsdóttir

1983-1987
Guðrún Agnarsdóttir 15,0%
Guðrún Helgadóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Kolbrún Jónsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
Kristín S. Kvaran
Ragnhildur Helgadóttir
Salome Þorkelsdóttir
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir

1987-1991
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir 20,6%
Danfríður Skarphéðinsdóttir
Guðrún Agnarsdóttir (afsögn 1990)
Guðrún Helgadóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Kristín Einarsdóttir
Kristín Halldórsdóttir (afsögn 1989)
Margrét Frímannsdóttir
Málmfríður Sigurðardóttir
Ragnhildur Helgadóttir
Salome Þorkelsdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Þórhildur Þorleifsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir (tók sæti 1989) 22,2%
Anna Ólafsdóttir Björnsson (tók sæti 1989)
Guðrún J. Halldórsdóttir (tók sæti 1990)
Sólveig Pétursdóttir (tók sæti 1991) 23,8%

1991-1995
Anna Ólafsdóttir Björnsson 23,8%
Guðrún Helgadóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (afsögn 1994)
Ingibjörg Pálmadóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
Kristín Ástgeirsdóttir
Kristín Einarsdóttir
Lára Margrét Ragnarsdóttir
Margrét Frímannsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Salome Þorkelsdóttir
Sigríður A. Þórðardóttir
Sólveig Pétursdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Petrína Baldursdóttir (tók sæti 1993) 25,4%
Guðrún J. Halldórsdóttir (tók sæti 1994)

1995-1999
Arnbjörg Sveinsdóttir 25,4%
Ásta R. Jóhannesdóttir
Bryndís Hlöðversdóttir
Guðný Guðbjörnsdóttir
Ingibjörg Pálmadóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Kristín Ástgeirsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
Lára Margrét Ragnarsdóttir
Margrét Frímannsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Sigríður A. Þórðardóttir
Siv Friðleifsdóttir
Sólveig Pétursdóttir
Svanfríður Jónasdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir (tók sæti 1996) 27,0%
Ásta B. Þorsteinsdóttir (tók sæti 1998) 28,6%
Eftir andlát Ástu B. Þorsteinsdóttur 1998 27,0%
Katrín Fjeldsted (tók sæti 1999) 28,6%
Guðrún Helgadóttir (tók sæti 1999) 30,2%

1999-2003
Arnbjörg Sveinsdóttir 34,9%
Ásta R. Jóhannesdóttir
Ásta Möller
Bryndís Hlöðversdóttir
Drífa Hjartardóttir
Guðrún Ögmundsdóttir
Ingibjörg Pálmadóttir (afsögn 2001)
Jóhanna Sigurðardóttir
Katrín Fjeldsted
Kolbrún Halldórsdóttir
Lára Margrét Ragnarsdóttir
Margrét Frímannsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Sigríður Jóhannesdótttir
Sigríður A. Þórðardóttir
Siv Friðleifsdóttir
Sólveig Pétursdóttir
Svanfríður Jónasdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þuríður Backman
Jónína Bjartmarz (tók sæti 1999) 36,5%
Eftir afsögn Ingibjargar Pálmadóttur 34,9%
Sigríður Ingvarsdóttir (tók sæti 2001) 36,5%

2003-2007
Anna Kristín Gunnarsdóttir 30,2%
Ásta R. Jóhannesdóttir
Bryndís Hlöðversdóttir (afsögn 2005)
Dagný Jónsdóttir
Drífa Hjartardóttir
Guðrún Ögmundsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Jónína Bjartmarz
Katrín Júlíusdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Margrét Frímannsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Sigríður A. Þórðardóttir
Siv Friðleifsdóttir
Sólveig Pétursdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þuríður Backman
Arnbjörg Sveinsdóttir (tók sæti 2004) 31,7%
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (tók sæti 2005)
Ásta Möller (tók sæti 2005) 33,3%
Sigurrós Þorgrímsdóttir (tók sæti 2006) 34,9%
Sæunn Stefánsdóttir (tók sæti 2006) 36.5%

2007-2009
Arnbjörg Sveinsdóttir 31,7%
Álfheiður Ingadóttir
Ásta R. Jóhannesdóttir
Ásta Möller
Björk Guðjónsdóttir
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Katrín Jakobsdóttir
Katrín Júlíusdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Ólöf Nordal
Ragnheiður E. Árnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Siv Friðleifsdóttir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þuríður Backman
Herdís Þórðardóttir (tók sæti 2007) 33.3%
Helga Sigrún Harðardóttir (tók sæti 2008) 34,9%
Eygló Harðardóttir (tók sæti 2008) 36.5%

2009-
Álfheiður Ingadóttir 42,9%
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Birgitta Jónsdóttir
Eygló Þóra Harðardóttir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Katrín Jakobsdóttir
Katrín Júlíusdóttir
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Lilja Mósesdóttir
Margrét Tryggadóttir
Oddný G. Harðardóttir
Ólína Þorvarðardóttir
Ólöf Nordal
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Siv Friðleifsdóttir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir (afsögn 2010)
Svandís Svavarsdóttir
Unnur Brá Konráðsdóttir
Valgerður Bjarnadóttir
Vigdís Hauksdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir (afsögn 2011)
Þuríður Backman
Eftir afsögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur 41,3%
Eftir afsögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur 39,7%.

Drengskaparheit
Þingmenn vinna drengskaparheit að stjórnarskránni þegar þeir taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.