Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Tryggvi Þór Herbertsson
9. þm. NA, S, TÞH
Tryggvi Þór Herbertsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Lagasafn - leiðbeiningar

Til leiðbeiningar um notkun lagasafns

  1. Upphaf hverrar greinar er auðkennt með fylltum ferningi.
  2. Málsgrein byrjar alltaf á nýrri línu og er upphaf hennar auðkennt með opnum ferningi.
  3. Töluliðir og stafliðir byrja á nýrri og inndreginni línu.
  4. Neðanmálsgreinar birtast eftir hverja lagagrein eða við heiti laga eða kafla þar sem við á.
  5. Breytingar og viðaukar, sem eru felldir inn í eldri lög, eru innan hornklofa. Tölustafur aftan við síðari hornklofann vísar til neðanmálsgreinar þar sem breytingarlaganna er getið.
  6. Athugasemdir til frekari skýringar eru í neðanmálsgreinum þar sem efni hefur þótt til.
  7. Stundum kemur aðeins greinarnúmer fram í lögum með punktalínu til marks um úrfellingu í stað texta ákvæðisins en engin neðanmálsgrein til skýringar á brottfalli textans. Í slíkum lagagreinum hefur verið mælt fyrir um atriði varðandi gildistöku laganna, brottfall annarra lagaákvæða eða tengsl eldri laga og yngri. Það sama getur átt við um málsgrein, eina eða fleiri, innan lagagreinar sem er birt að öðru leyti. Með samsvarandi hætti hefur texti bráðabirgðaákvæða við lög í ýmsum tilvikum verið felldur niður og í hans stað sett punktalína án neðanmálsgreinar til skýringar á afdrifum hans. Þetta hefur verið gert í tilvikum þar sem sýnilegt hefur þótt að bráðabirgðaákvæði hafi ekki lengur raunhæft gildi, en í lagasafninu eiga þá að standa eftir nægilegar upplýsingar til að finna megi upphaflega textann í Stjórnartíðindum, hvort sem er í viðkomandi stofnlögum sjálfum eða lögum sem síðar voru sett til breytingar á þeim. Heildartexta laga er í flestum tilvikum hægt að finna á heimasíðu Alþingis undir Lagasafn, Lög samþykkt á Alþingi (stjórnartíðindanúmer laga).
  8. Lagatexti er ekki alltaf nákvæmlega eins og hann var birtur í Stjórnartíðindum. Hefur stafsetning verið löguð að gildandi reglum, augljósar ritvillur eru leiðréttar og skammstafanir eru samræmdar, auk uppsetningar fyrirsagna. Þurfi notandi að taka upp tilvitnun af fullkominni nákvæmni, þar sem þessa getur gætt, ber til öryggis að líta til frumtexta í Stjórnartíðindum.
  9. Á eftir heiti og númeri hverra laga er gildistökudagur þeirra tilgreindur, svo og öll breytingalög og gildistökudagur þeirra. Þegar við á er einnig tiltekið ef lög eru sett vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum. Er þá tiltekið hvaða stofngerð lögin eru reist á og undir hvaða viðauka samningsins lögin heyra.


Helstu skammstafanir

augl.auglýsingmgr.málsgrein
ákv.ákvæðirg.reglugerð
brbákv.bráðabirgðaákvæðirgl.reglur
forsbr.forsetabréfsamþ.samþykkt
gr.greinstjskr.stjórnarskrá
konbr.konungsbréfStjtíð.Stjórnartíðindi
l.lögtilsk.tilskipun
málsl.málsliðurtölul.töluliður

Kringlan
Viðbyggingin Kringlan var reist 1908 sem risnuherbergi. Kringlan var veitingastofa Alþingis til 1973, en er nú setustofa og oft notuð sem vettvangur fréttaviðtala við þingmenn.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.