Nóg er að velja eitt leitaratriði.
Löggjafarþing:
Ef ekkert þing er valið úr felliglugga eða tiltekið er leitað í yfirstandandi þingi.
Tiltekið:
- Hægt er að takmarka leit við ákveðin þing með því að slá inn númer þings í þennan leitarglugga.
Ef um ákveðið árabil er að ræða eru númerin slegin inn á forminu 123-125. Ef um er að ræða tiltekin
þing má telja þau upp með kommu á milli 127, 129
- Til að finna út hver númer löggjafarþinga eru, er smellt á orðið löggjafarþing og þá birtist listi yfir númer þinga og ártal.
Málsnúmer:
Sláið inn málsnúmer, sé það þekkt. Hægt er að slá inn fleiri en eitt númer með því að setja kommu á milli. Dæmi 45, 86
Skjalsnúmer:
Sláið inn skjalsnúmer, sé það þekkt. Hægt er að slá inn fleiri en eitt númer með því að setja kommu á milli. Dæmi 45, 86
Stjórnartíðindanúmer:
Sláið inn stjórnartíðindanúmer sé það þekkt. Athugið að nauðsynlegt er að velja öll þing úr felliglugga, nema eingöngu sé verið að leita að lögum eða þingsályktunum samþykktum á yfirstandandi löggjafarþingi. Dæmi 20/2006
Til að finna lög eftir stjórnartíðindanúmerum er þó einfaldast að fara beint í listann yfir
stjórnartíðindanúmer laga.
Málsheiti:
Sláið inn málsheiti (hluta eða öllu) á forminu *málsheiti*. Stjarna * stendur fyrir óendanlegan fjölda stafa/orða.
Þarna má setja inn fleiri en eitt orð, ef orðin standa saman í heiti máls.
Dæmi: *starfsmanna ríkis*
Dæmi: *almannatrygg*
Ath. að í þessum glugga er einungis hægt að leita í málsheiti, ekki í texta skjala.
Ath. að gerður er greinarmunur á lágstöfum og hástöfum. Fyrsti stafur í málsheiti er alltaf lítill nema þegar sérnafn er í upphafi.
Efnisflokkar:
Þingmál:
Veljið tegund þingmáls ef þekkt er. Ef ekkert er valið er leitað að öllum tegundum þingmála.
Fyrirspurnir:
Til að fá fram fyrirspurnir eða beiðnir um skýrslu sem beint er til ákveðins ráðherra er valið úr felliglugga.
Flutningur:
Ef hakað er við máls takmarkast leitin við mál þar sem flutningsmaður skjals er málshefjandi.
Veljið hver flytur mál ef þekkt er. Ef ekkert er valið er leitað að öllum flutningsmönnum. Einnig er hægt að velja ákveðinn þingmann,
ráðherra eða nefnd úr felligluggum.
Flutningur mála og skjala
Þingmál verður til við framlagningu frumskjals. Talað er um flutningsmenn málsins sem flutningsmenn frumskjalsins.
Hægt er að takmarka skjalalistann við flutning málsins en þá þarf að haka við að þess sé óskað. T.d. ef lista á
öll skrifleg svör sem sem komið hafa við fyrirspurnum ákveðins þingmanns er þingmaðurinn
flutningsmaður málsins, en ekki þeirra skjala sem finnast sem eru svör ráðherra.
Athugið að stöðuskjöl og lokaskjöl, sem gefin eru út vegna breytinga sem mál hafa tekið í meðförum þingsins, hafa enga flutningsmenn,
en hægt er að takmarka listann við flutningsmenn frumskjalsins ef hakað er við flutning máls. Ef finna á t.d. öll lokaskjöl í frumvörpum
sem ákv. ráðherra hefur flutt, er hakað við flutning máls og ráðherrann valinn og frv. og lokaskjal. Einfaldara er að fara í stöðu mála
til að fá þessar upplýsingar.
Þingskjal:
Hér er hægt að haka við tegund þingskjals ef óskað er. Ef leitað er að svari við fyrirspurn er merkt við svar. Til að finna samþykkt lög
þarf að merkja við lokaskjal hér og frumvörp undir þingmál. Til að finna þingsályktanir er einnig merkt við lokaskjal hér en þingályktunartillögur
undir þingmál.
Um þingskjöl:
Öll þingmál, frumvörp, þingsályktunartillögur, fyrirspurnir og skýrslur, sem og nefndarálit, breytingartillögur og aðrar
tillögur um afgreiðslu, eru lögð fram prentuð. Skjölin eru einu nafni nefnd þingskjöl. Þau eru merkt í hlaupandi töluröð en einnig
númeri þess þingmáls sem þau tilheyra.
Útbýtingardagur:
Ef útbýtingardagur þingskjals er þekktur má slá inn dagsetningu á forminu dagsetning.mánuður.ár; dd.mm.áááá.
Hreinsa leitarsviðin ef gengur illa:
Sérstakur hnappur er til þess að hreinsa leitarsviðin. Á milli leita er æskilegt að hreinsa leitarsviðin.