Ráðherrar sem ekki hafa verið kjörnir alþingismenn
BJÖRN ÞÓRÐARSON,
lögmaður. F. á Móum á Kjalarnesi
6. febr. 1879, d. 25. okt.
1963. For.: Þórður Runólfsson bóndi og hreppstjóri þar og k. h. Ástríður
Jochumsdóttir húsmóðir. K. Ingibjörg Ólafsdóttir húsmóðir, dóttir Ólafs Briems
alþm. Forsætis-, heilbrigðis- og kirkjumálaráðherra 1942-1944.
JÓHANN SÆMUNDSSON,
prófessor. F. á Elliða í Staðarsveit 9. maí
1905, d. 6. júní
1955. For.: Sæmundur Sigurðsson bóndi og hreppstjóri þar og k. h. Stefanía
Jónsdóttir húsmóðir. K. Sigríður Árnadóttir Thorsteinson húsmóðir, sonardóttir
Árna Thorsteinsonar alþm. Félagsmálaráðherra 1942-1943.
MAGNÚS JÓNSSON,
prófessor. F. á Úlfljótsvatni í Grafningi
17. júlí 1878, d. 2.
okt. 1934. For.: Jón Þórðarson bóndi þar og k. h. Þórunn Magnúsdóttir húsmóðir.
K. Harriet Edith Isabel húsmóðir, f. Bonnesen. Fjármálaráðherra 1922-1923.
SIGURÐUR KRISTINSSON,
forstjóri. F. í Öxnafellskoti í Eyjafirði
2. júlí 1880,
d. 14. nóv. 1963. For.: Kristinn Ketilsson bóndi þar og k. h. Salóme Hólmfríður
Pálsdóttir húsmóðir. K. Guðlaug Hjörleifsdóttir húsmóðir, hálfsystir Sigurðar
H. Kvarans alþm. Atvinnu- og samgöngumálaráðherra 1931.
VILHJÁLMUR ÞÓR,
bankastjóri. F. á Æsustöðum í Eyjafirði
1. sept. 1899, d. 12.
júlí 1972. For.: Þórarinn Jónasson bóndi þar og k. h. Ólöf Margrét Thorlacius
húsmóðir. K. Rannveig Þór húsmóðir. Utanríkis- og atvinnumálaráðherra 1942-1944.
JÓN SIGURÐSSON,
rektor og seðlabankastjóri. F. í Kollafirði á Kjalarnesi, 23. ágúst 1946. For.: Sigurður Ellert Ólason, hæstaréttarlögmaður og ríkislögmaður, og Unnur Kolbeinsdóttir, kennari og bókavörður. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 2006-2007.
GYLFI MAGNÚSSON,
hagfræðingur og dósent. F. í Reykjavík 11. júlí 1966. For.: Magnús Ragnar Gíslason yfirtannlæknir og Dóra Jóhannsdóttir, húsmóðir og aðstoðarkona tannlæknis. Viðskiptaráðherra 2009, efnahags- og viðskiptaráðherra 2009-2010.
RAGNA ÁRNADÓTTIR,
lögfræðingur og ráðuneytisstjóri. F. í Reykjavík 30. ágúst 1966. For.: Árni Björn Jónasson verkfræðingur og Guðrún Ragnarsdóttir framhaldsskólakennari. Dóms- og kirkjumálaráðherra 2009, dómsmála- og mannréttindaráðherra 2009-2010.
Skrifstofa Alþingis: Byggt á Alþingismannatali 1996.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.