Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Reglur um opna fundi fastanefnda Alþingis

1. gr.

Reglur þessar gilda um opna fundi sem fastanefnd eða meirihluti hennar ákveður að halda, sbr. ákvæði 19. gr. þingskapa. Nefnd getur haldið opinn fund í því skyni að afla sér upplýsinga um þingmál sem vísað hefur verið til hennar eða um mál sem nefndin tekur upp að eigin frumkvæði, sbr. 26. gr. þingskapa.

Fastanefnd getur óskað eftir því að ráðherrar, forstöðumenn sjálfstæðra ríkisstofnana og fulltrúar hagsmunaaðila er mál varða komi á opna fundi og veiti nefndinni upplýsingar.

Tvær eða fleiri nefndir geta efnt sameiginlega til opins fundar og skal þá formaður þeirrar nefndar sem málinu hefur verið vísað til stýra slíkum sameiginlegum fundi. Sé fundur um mál skv. 26. gr. stýrir formaður þeirrar nefndar sem hefur tekið málið upp sameiginlegum fundi.

2. gr.

Þegar ákvörðun liggur fyrir um að halda opinn fund skal hann tilkynntur á vef Alþingis. Þar skal greint frá dagskrá fundarins, fundarstað og hvaða gestir sitji fundinn.

3. gr.

Fjölmiðlar skulu eiga þess kost að láta fulltrúa sína fylgjast með opnum fundi. Jafnframt skal fundurinn opinn almenningi eftir því sem húsrúm leyfir.

Ljósvakamiðlum er heimilt að hafa beinar útsendingar frá opnum nefndafundi óski þeir slíks, enda bera þeir allan kostnað af slíkri útsendingu.

4. gr.

Skrifstofa Alþingis skal leggja nefnd til fundaraðstöðu fyrir opinn fund sem uppfyllir ákvæði 1. og 3. gr.

5. gr.

Á opnum fundi gilda fundarsköp fastanefnda samkvæmt starfsvenjum með þeim undantekningum sem felast í 6., 7. og 8. gr.

6. gr.

Í upphafi opins nefndafundar skal formaður nefndarinnar gera grein fyrir fundarefni og tilefni fundarins áður en gestum eða öðrum nefndarmönnum er gefið orðið. Hann skal jafnframt gera stuttlega grein fyrir fyrirkomulagi fundarins. Þá skal formaður gera grein fyrir þeim gögnum sem gestir leggja fyrir fundinn til glöggvunar fyrir þá er fylgjast með fundinum.

7. gr.

Miða skal við að framsaga talsmanns hvers hóps gesta sem á fund kemur sé ekki lengri en 10 mínútur. Talsmanni hóps er heimilt að fela öðrum úr hópnum að svara einstökum spurningum en þeir gestir skulu þá takmarka mál sitt við 3 mínútur hverju sinni. Nefndarmenn sem taka til máls og beina spurningum til gesta skulu takmarka mál sitt hverju sinni við 2 mínútur. Frá þessum tímamörkum má þó víkja eftir aðstæðum og skal þá formaður tilkynna um slíkt í upphafi fundar.

Formaður skal sjá til þess að þegar nefndarmaður hefur borið fram sínar spurningar sé þeim svarað áður en hann gefur næsta nefndarmanni orðið.

8. gr.

Á opnum fundi skulu nefndarmenn einvörðungu beina spurningum til gesta. Þeir skulu ekki setja fram almennar hugleiðingar um efni fundarins né efna til umræðna um fundarefnið sín í milli. Í lok fundar, eða áður en gestir hverfa á braut, skal einn fulltrúi hvers flokks sem fulltrúa á í nefndinni hins vegar eiga þess kost að lýsa afstöðu sinni og síns flokks til þess máls sem fyrir fundinum liggur og þeirra sjónarmiða sem komið hafa fram hjá gestum. Þeir nefndarmenn sem til máls taka skulu takmarka mál sitt við 3 mínútur.

9. gr.

Það sem fram fer á opnum fundi nefndar skal tekið upp í því skyni að hægt sé að staðreyna það síðar ef þörf krefur. Slík upptaka skal fyrst og fremst fela í sér hljóðritun. Útskrift umræðna á opnum fundi skal þó takmarka við þau atriði sem staðreyna þarf og sem hafa komið fram á fundinum, sbr. 1. málsl. Ef unnt er að koma því við er heimilt að hafa upptöku bæði í hljóð og mynd og skal þá slík upptaka vera aðgengileg á vef Alþingis.

10. gr.

Opinn fund fastanefndar skal ekki halda meðan þingfundur stendur yfir.

11. gr.

Í forföllum nefndarmanns skal þingflokkur tilnefna annan þingmann sem varamann til setu á fundinum, sbr. 3. mgr. 17. gr. þingskapa

12. gr.

Á opnum nefndarfundi skulu nefndarmenn fylgja þeim venjum sem gilda um klæðaburð í þingsal.

13. gr.

Óheimilt er að hafa kveikt á farsíma meðan á opnum nefndarfundi stendur.

14. gr.

Formanni er heimilt að vísa gesti af fundi ef hann truflar fundarfrið eða framkoma hans er óviðeigandi í orði eða verki.

15. gr.

Reglur þessar eru settar á grundvelli 8., 18. og 19. gr., sbr. og 26. gr., laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, með síðari breytingum, og skulu taka gildi frá og með 20. janúar 2009.

(Samþykkt á fundi forsætisnefndar 14. janúar 2009, upphaflegar bráðabirgðareglur samþykktar í forsætisnefnd 3. júní 2008.)

Heimsókn forseta Eistlands
Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands heimsótti Alþingi þann 10. júní 2010 ásamt fylgdarliði. Hann fylgdist með þingfundi og átti fund með forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, og fulltrúum þingflokka.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.