Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Guðlaugur Þór Þórðarson
7. þm. RS, S, GÞÞ
Guðlaugur Þór Þórðarson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Reglur um úthlutun styrkja til að stuðla að umræðu og fræðslu um Evrópusambandið

1. gr.
Tilgangur.

Alþingi veitir styrki, samkvæmt ákvörðun á fjárlögum hverju sinni, til að stuðla að opinberri og upplýstri umræðu og fræðslu um Evrópusambandið, stefnu þess og áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að sambandinu.

2. gr.
Styrkir.

Styrki skal veita til íslenskra félaga og félagasamtaka sem, samkvæmt tilgangi sínum, fjalla um málefni Evrópusambandsins og lýsa sjónarmiðum sínum til hugsanlegrar aðildar að sambandinu, sbr. 1. gr.

Þegar aðalmenn og varamenn í alþjóðanefndir eru kosnir á þingsetningarfundi samkvæmt tillögu formanna þingflokka boðar kosinn formaður fyrsta fund nefndarinnar að jafnaði innan viku frá kosningu.

Styrki skal eingöngu veita til skýrt afmarkaðra verkefna. Styrki má m.a. veita til þess að:

  1. útbúa efni og birta það í blöðum, ritum eða með öðrum hætti,
  2. halda opna fundi og ráðstefnur,
  3. standa fyrir fyrirlestrum sérfræðinga,
  4. standa fyrir ýmiss konar fræðslustarfsemi, samkvæmt nánari ákvörðun úthlutunarnefndar.

Ekki er heimilt að veita styrki til eiginlegs reksturs. Með rekstri er m.a. átt við rekstur skrifstofu, þ.m.t. húsaleigugreiðslur og launagreiðslur til starfsfólks.

Styrkveitingar samkvæmt reglum þessum taka ekki til einstaklinga.

3. gr.
Umsóknir.

Í umsókn um styrk skal koma fram greinargóð lýsing á því verkefni sem sótt er um styrk til að vinna að ásamt kostnaðaráætlun. Jafnframt skal greina frá þeim grundvelli sem félag eða félagasamtök byggja starfsemi sína á og hver sé tilgangur þeirra. Með umsókn skulu fylgja samþykktir eða stofnskrá félags eða félagasamtaka.

Hægt er að sækja um styrki til fleiri en eins verkefnis í sömu umsókn.

4. gr.
Úthlutunarnefnd.

Forsætisnefnd Alþingis skipar úrhlutunarnefnd þriggja einstaklinga. Þeir skulu við úthlutun styrkja samkvæmt reglum þessum gæta óhlutdrægni og faglegra sjónarmiða. Forsætisnefnd skipar jafnframt tvo einstaklinga til vara.

Um hæfi nefndarmanna til þess að fjalla um einstakar umsóknir fer samkvæmt ákvæðum 3.-5. gr. stjórnsýslulaga.

Skrifstofa Alþingis lætur úthlutunarnefnd í té nauðsynlega aðstoð og aðbúnað.

Kostnaður af störfum úthlutunarnefndar greiðist af árlegum fjárveitingum, sbr. 1. gr.

5. gr.
Auglýsing og úthlutun.

Styrkir skulu auglýstir í fjölmiðlum skv. nánari ákvörðun úthlutunarnefndar. Úthlutunarnefnd getur ákveðið að skipta heildarupphæð styrkja, sbr. 1. gr., í tvær eða fleiri úthlutanir. Úthlutunarnefnd getur jafnframt ákveðið að hluti þegar auglýstrar úthlutunar komi til ráðstöfunar síðar samkvæmt nýrri auglýsingu.

Í auglýsingu skal greina þær kröfur sem gerðar eru til umsókna og fyrir hvaða tíma þær skuli berast.

Við úthlutun styrkja skal gætt jafnræðis milli ólíkra sjónarmiða til Evrópusambandsins. Gæta skal sérstaklega að því að fjárveitingar til andstæðra fylkinga (já- og nei-hreyfingar) séu sem jafnastar.

Sé styrks ekki vitjað innan fimm mánaða frá dagsetningu tilkynningar fellur hann niður.

6. gr.
Skyldur styrkþega og eftirlit.

Styrkhafar skulu fyrir lok árs skila stuttri skýrslu til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkjanna ásamt reikningum.

Úthlutunarnefnd skal fyrir 1. maí ár hvert skila forsætisnefnd uppgjöri um störf sín og úthlutun styrkja.

Ríkisendurskoðun endurskoðar uppgjör úthlutunarnefndar.

(Samþykkt á fundi forsætisnefndar Alþingis 30. maí 2011).

Opinber heimsókn til Palestínu
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, afhendir Azzam Al-Ahmad, leiðtoga Fatah hreyfingarinnar á palestínska löggjafarþinginu, enska þýðingu ályktunar Alþingis um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.