Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Einar K. Guðfinnsson
5. þm. NV, S, EKG
Einar K. Guðfinnsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)

Opnir nefndafundir


Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir lögfræðingur,

Fastur fundartími nefndarinnar er á þriðjudögum kl. 9.00-12.00 og fimmtudögum kl. 8.30.-10.30.

Málaflokkar

Nefndin fjallar um stjórnarskrármál, málefni forseta Íslands, Alþingis og stofnana þess, kosningamál, málefni Stjórnarráðsins í heild og önnur mál sem varða æðstu stjórn ríkisins. Enn fremur fjallar nefndin um skýrslur Ríkisendurskoðunar og um ársskýrslu og tilkynningar umboðsmanns Alþingis.

Nefndin skal einnig hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að athuga á grundvelli þess eftirlitshlutverks sem Alþingi hefur gagnvart framkvæmdarvaldinu. Komi beiðni um slíka athugun frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna skal hún fara fram. Um athugun sína getur nefndin gefið þinginu skýrslu.

Nefndin skal jafnframt leggja mat á og gera tillögu til Alþingis um hvenær rétt er að skipa rannsóknarnefnd, sbr. lög um rannsóknarnefndir. Nefndin tekur skýrslur slíkrar nefndar til umfjöllunar og gefur þinginu álit sitt um þær og gerir tillögur um frekari aðgerðir þingsins.

Kosning

Kosið var í nefndina við upphaf 140. þings vegna breytinga á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, sem samþykktar voru á Alþingi 11. júní 2011. Að öllu jöfnu eru 9 þingmenn kosnir á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.

Umsagnir um þingmál

Svör við umsagnarbeiðnum og athugasemdir um þingmál (sjá umsagnir um þingmál) má senda í tölvupósti en frumrit umsagnar þarf jafnframt að berast til skjalaskráningar á nefndasviði skrifstofu Alþingis, Austurstræti 8-10, 150 Reykjavík. Netfangið er nefndasvid@althingi.is.

Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.

Sjá leiðbeiningar um ritun umsagna.

Þingmannanefnd fundar með rannsóknarnefnd Alþingis
Þingmenn í þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis funduðu með nefndarmönnum í rannsóknarnefnd Alþingis þann 13. apríl 2010.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.