Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Birgir Ármannsson
9. þm. RN, S, BÁ
Birgir Ármannsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Skjalavinnsla og sniðmát


Hér má finna sniðmát fyrir nokkrar gerðir þingskjala. Í þeim eru stílar fyrir meginmál og mismunandi gerðir fyrirsagna til að auðvelda uppsetninguna. Fyrir neðan eru einnig ýmsar upplýsingar um þingskjöl, m.a. um útlit þeirra.

Nánari upplýsingar um stjórnarfrumvörp og tillögur: stjornarskjol@althingi.is
Nánari upplýsingar um önnur þingskjöl: skjalavinnsla@althingi.is

Sniðmát (templates)

Útlit þingskjala

  • Uppsetning þingskjala er samkvæmt venju í föstum skorðum. Miðað er við að hún sé sem látlausust, t.d. er lítið um leturbreytingar.
  • Þingskjöl eru prentuð í svokölluðu crown-broti sem er töluvert minna en A4. Prentflöturinn í þingskjölum er 20,5 x 13,8 cm. Myndir, töflur og annað þarf að rúmast innan þess ramma.
  • Letur: Times New Roman.
  • Leturstærð: Texti í meginmáli er 10,5 punktar og sama leturstærð er á fyrirsögnum (öðrum en fyrirsögn skjalsins sjálfs). Smærra letur er stundum notað í töflum og víðar ef sérstök ástæða þykir til.
  • Þingskjöl eru nær alltaf prentuð í svart-hvítu. Litútgáfur af myndum sjást þó í pdf-skjölum á netinu.
  • Blaðsíðunúmer eru efst á síðu fyrir miðju. Blaðsíðutal í þingskjölum þarf að vera samfellt.
  • Fyrsta lína málsgreinar er alltaf inndregin og ekki er aukabil milli málsgreina.
  • Í sniðmátum þingskjala hafa verið skilgreindir stílar fyrir meginmál og mismunandi gerðir fyrirsagna til að auðvelda uppsetninguna. Stílarnir eru í kassanum Styles á Home-flipanum á borðanum efst. Hægt er að smella á litla boxið með örinni neðst í hægra horninu á Styles-kassanum til að fá aðgengilegan lista yfir stílana.

Númer

  • Þingskjöl bera bæði þingskjalsnúmer og málsnúmer. Þingfundaskrifstofa gefur skjölunum númer eftir að þau hafa verið send henni til framlagningar. Öll skjöl í sama þingmáli hafa sameiginlegt málsnúmer en mismunandi þingskjalsnúmer. Sem dæmi má nefna að svar ber sama málsnúmer og viðkomandi fyrirspurn en fær sitt eigið þingskjalsnúmer þegar þingfundaskrifstofa fær svarið í hendur.

Annað

  • Í þingskjölum koma ekki fram útgáfuupplýsingar, svo sem um prentsmiðju og ISBN-/ISSN-númer.
  • Upplag stjórnarskjala, þ.e. frumvarpa, þingsályktunartillagna og skýrslna sem ráðherrar flytja, á 141. löggjafarþingi er 230 eintök, þ.e. 80 fyrir Alþingishús, 110 fyrir skjalaafgreiðslu Alþingis og 30 fyrir ráðuneytið. Ef ráðuneyti vill fleiri eða færri eintök þarf beiðni um það að berast skjaladeild áður en skjalið er sent í prentun eða prentsmiðjunni sjálfri ef um skýrslur er að ræða.
  • Á vef forsætisráðuneytisins eru reglur um undirbúning og meðferð stjórnarfrumvarpa. Þar er einnig að finna ábendingar um uppbyggingu athugasemda með þeim.
  • Ýmsar leiðbeiningar um stjórnarfrumvörp eru í Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa (pdf).
  • Almennar ábendingar um stíla og sniðmát (pdf).



Málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, afhjúpað
Föstudaginn 13. apríl 2012 afhjúpaði forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, í Alþingishúsinu. Sólveig Pétursdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og listamaðurinn, Stephen Lárus Stephen við málverkið af Sólveigu í efrideildarsal.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.