Skrifstofa Alþingis annast margvíslega þjónustu við þingmenn og þá sem leita þurfa upplýsinga eða með erindi sín til þingsins.
Nánari upplýsingar um verkefni skrifstofunnar er að finna í skipuritinu. Laus störf á skrifstofu Alþingis eru auglýst undir tilkynningum á forsíðu vefs Alþingis og á starfatorgi.
Ýmsar upplýsingar
Símanúmer skrifstofu Alþingis:
563 0500
Póstfang:
Skrifstofa Alþingis, 150 Reykjavík.
Opnunartími:
Skrifstofa Alþingis er opin kl. 9-17 frá
1. október til þingloka að vori og
kl. 8-16 á sumrin.
Skrifstofa í Alþingishúsinu er opin meðan þingfundir standa.
Gildi skrifstofu Alþingis
Þjónustulund
Við göngum til verka af jákvæðni, lipurð og hógværð.
Fagmennska
Við leysum verkefni okkar af ábyrgð, metnaði og þekkingu. Við temjum okkur víðsýni og hlutleysi í störfum.
Samvinna
Við vinnum saman með jafnræði, sanngirni og virðingu að leiðarljósi.