Upplýsingar um starfskjör
Allar upplýsingar um starfskjör alþingismanna eru veittar á fjármálaskrifstofu og skal hafa samband við aðstoðarskrifstofustjóra (rekstur) eða forstöðumann fjármálaskrifstofu um þau mál, sími 563 0913.
Starfsfólk fjármálaskrifstofu hefur aðsetur í Kirkjustræti 8b (Blöndahlshúsi).
Fjármálaskrifstofan gerir rekstrar- og framkvæmdaáætlanir, hefur umsjón með bókhaldi, ferðaheimildum og ferðauppgjöri, auk móttöku og greiðslu reikninga. Fjármálaskrifstofa heldur utan um starfsmannamál og launavinnslu.
Þingfararkaup og þingfararkostnaður alþingismanna
Kveðið er á um laun og önnur kjör alþingismanna í lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað,
nr. 88/1995 með síðari breytingum. Samkvæmt lögunum úrskurðar Kjararáð um föst laun alþingismanna, þingfararkaup.
Forsætisnefnd ákveður hins vegar álag á þingfararkaup fyrir formennsku í nefndum og þingflokkum og einnig fjárhæð allra fastra greiðslna þingfararkostnaðar
(húsnæðis- og dvalarkostnaðar, ferðakostnaðar í kjördæmi og starfskostnaðar). Þá setur forsætisnefnd nánari reglur um greiðslur, bæði fastar og breytilegar
(þ.e. eftir reikningum). Nákvæmar upplýsingar um þessar greiðslur er að finna í reglum um þingfararkostnað.
Ferðakostnaður innan lands
Auk fastrar greiðslu fyrir ferðakostnað í kjördæmi eiga þingmenn rétt á að fá endurgreiddan ferðakostnað milli heimilis og Alþingis á eigin bifreið eða með almenningsfarartækjum. Sérstakt ákvæði er um þingmenn sem búa utan Reykjavíkur og aka daglegt til og frá vinnustað. Sbr. reglur um þingfararkostnað.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður
Þingmaður fyrir kjördæmi utan Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis fær
fasta upphæð mánaðarlega til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði í Reykjavík.
Búi hann í Reykjavík eða nágrenni er fjárhæðin ætluð til að standa undir sams konar kostnaði í kjördæmi.
Þá getur þingmaður, sem þarf að halda tvö heimili, sótt um 40% álag. Reglur um álagið er að
finna í reglum um þingfararkostnað sbr. 3. mgr. 2. gr.
Sérreglur eru um greiðslur til þingmanna er búa utan Reykjavíkurkjördæma- suður og norður og Suðvesturkjördæmis og aka daglega
milli Alþingis og heimilis sbr. 3. mgr. 4. gr.
reglna um þingfararkostnað.
Símakostnaður
Samkvæmt 9. gr. laga um þingfararkaup á alþingismaður rétt á að
fá endurgreiddan símakostnað sem tengist þingstörfum hans.
Auk símakostnaðar á skrifstofu á alþingismaður rétt á að fá endurgreiddan kostnað við síma á heimili og starfsstöð.
Þingmaður getur fengið endurgreiddan kostnað við kaup á GSM-síma, allt að 40 þús. kr. Þá er greitt fyrir notkun á farsímum.
Ferðakostnaður erlendis
Almenna reglan er að ferðakostnaður er greiddur í samræmi
við reglur um greiðslu ferðakostnaðar á vegum ríkisins sem ferðakostnaðarnefnd gefur út
og birtar eru í Lögbirtingablaði. Alþingismenn eiga þó rétt á að fá greiddan gistikostnað
(hótelherbergi) og 50% fullra dagpeninga til viðbótar. Þá er tekin staðgreiðsla skatta af hluta greiðslunnar samkvæmt ákvörðun ríkisskattstjóra.
Þingmaður skal greiða ferðir til og frá flugvöllum heima og erlendis af dagpeningum. Starfsfólk fjármálaskrifstofu gerir ferðareikning í lok ferðar.
Starfskostnaður
Samkvæmt 9. gr. laga um þingfararkaup eiga alþingismenn rétt á að fá endurgreiddan kostnað sem hlýst af starfi þeirra. Hámark slíkrar greiðslu er nú 1.014.000 kr. á ári.
Í 9. gr. reglna um þingfararkostnað eru nánari
upplýsingar um starfskostnað og hvað fellur þar undir.
Fundir, ráðstefnur, námskeið o.fl. á eigin vegum
Þingmaður getur sótt fundi, ráðstefnur, námskeið o.fl. án þess að slíkt sé beinlínis á vegum Alþingis. Starfskostnaði er m.a. ætlað að standa undir slíkum útgjöldum.
Tryggingar
Allir alþingismenn eru tryggðir hjá Vátryggingafélagi Íslands. Almenn slysatrygging er í gildi allan sólarhringinn, þ.e. dánarbætur fyrir slys og örorkubætur fyrir örorku. Ferða- og sjúkratrygging og farangurstrygging eru í gildi á ferðalögum erlendis. Nánari upplýsingar eru veittar á fjármálaskrifstofu.
Starfskjör varaþingmanna
Varaþingmaður fær greitt þingfararkaup og aðrar fastar greiðslur
þingfararkostnaðar, þ.e. húsnæðis- og dvalarkostnað, ferðakostnað í kjördæmi og starfskostnað
sem hlutfall mánaðargreiðslna eftir því hve lengi þingsetan varir. Heimilt er að greiða
dvalarkostnað í Reykjavík í stað fastrar greiðslu húsnæðis- og dvalarkostnaðar. Þá fær
varaþingmaður endurgreiddan ferðakostnað til og frá heimili og póst- og símakostnað tengdan
þingstörfum. Nánari reglur er að finna í lögum um þingfararkaup, III. kafla.
Hvernig er greitt?
Mánaðarlegar greiðslur þingfararkaups og þingfararkostnaðar eru afgreiddar af fjármálaskrifstofu, Blöndahlshúsi. Þangað skal senda reikninga og akstursdagbækur fyrir kostnaði, ásamt tilheyrandi upplýsingum. Skrifstofan tekur við greiðslubeiðnum og annast reikningagerð. Að jafnaði er ferðakostnaður innan lands, símakostnaður og annar tilfallandi kostnaður afgreiddur innan þriggja daga eftir að beiðni er lögð fram. Greiðsla er lögð á bankareikning þingmannsins.
Skattskylda
Að frátöldu þingfararkaupi og starfskostnaði eru allar greiðslur til þingmanna fyrir kostnaði sem hlýst af þingsetu undanskildar tekjuskatti. Ef útgjöld, sem tengjast starfskostnaði, eru studd reikningum koma þau til lækkunar á skattstofni.
Biðlaun
Alþingismaður, sem hefur setið á Alþingi eitt kjörtímabil eða lengur, á rétt á biðlaunum er hann hættir þingmennsku. Biðlaun eru jafnhá þingfararkaupi, sem frá 1. október 2011 eru 585.559 kr. á mánuði, og greiðast þau í þrjá mánuði en í sex mánuði eftir þingsetu í tvö kjörtímabil eða lengur. Taki þingmaður, sem fær biðlaun, við starfi meðan þeirra nýtur falla þau niður ef launin er starfinu fylgja eru jafnhá en ella skerðast biðlaunin sem laununum nemur.
Lífeyrisréttindi
Frá 25. apríl 2009 fer um lífeyrisrétt alþingismanna eftir lögum nr. 1/1997 um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þeir alþingismenn sem öðluðust eftirlaunrétt skv. lögum nr. nr. 141/2003 fyrir þann tíma halda þegar áunnum réttindum.
Ferðapantanir og afgreiðsla dagpeninga
Skrifstofa forseta Alþingis annast ferðapantanir og umsóknir um ferðaheimildir og dagpeninga. Þessi verkefni eru á hendi fulltrúa. Ferðaáætlun er ákveðin hverju sinni í samráði við alþjóðaritara með hliðsjón af dagskrá og hagkvæmni. Vilji þingmaður gera breytingar á ferðaáætlun sinni hefur hann samband við fulltrúa á skrifstofu forseta Alþingis sem sér um þær. Hafi breyting samkvæmt persónulegum óskum kostnaðarauka í för með sér er hann borinn af þingmanni.
Dagpeningar eru lagðir inn á bankareikning þingmanns.
Að ferð lokinni afhendir þingmaður viðeigandi gögn, farseðil og hótelreikninga, svo að hægt sé að ljúka uppgjöri. Fjármálaskrifstofa annast uppgjör.