Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Páll Jóhann Pálsson
5. þm. SU, F, PJP
Páll Jóhann Pálsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Starfskostnaður

REGLUR
um endurgreiðslu starfskostnaðar
samkvæmt reikningum

1. gr.
     Ef alþingismaður óskar eftir að fá endurgreiddan starfskostnað skv. 6. mgr. 9. gr. reglna um þingfararkostnað frá 28. ágúst 1995, sbr. breytingu á þeim reglum frá 26. febr. 1996 og 16. nóv. 2006, gilda eftirfarandi reglur við mat á kostnaðinum.

2. gr.
     Eftirfarandi kostnaður alþingismanns skal endurgreiddur:
     1. Fundir, ráðstefnur, námskeið o.fl.:
a. Fundir sem alþingismaður stendur fyrir (fundaraðstaða, auglýsingar, kaffi og meðlæti).
b. Fundir, ráðstefnur, námskeið og fyrirlestrar sem alþingismaður sækir vegna starfa sinna og hann þarf að greiða fyrir (fundar-, námskeiðs- eða ráðstefnugjöld).
c. Ráðstefnur, fundir og námskeið er þingmaður sækir erlendis (ferðakostnaður, þátttökugjald og dagpeningar) enda hafi kostnaðaráætlun áður verið kynnt skrifstofunni og hún samþykkt hana.
     2. Bækur, tímarit og ritföng:
a. Fagbækur og tímarit sem þingmaður kaupir vegna starfs síns.
b. Ritföng til nota utan skrifstofunnar.
     3. Póstburðargjöld og sími:
a. Póstburðargjöld fyrir útsendingar ef þingmaður kýs að nota ekki póstþjónustu skrifstofunnar.
b. Símakostnaður í tengslum við sérstök verkefni og stofnkostnaður eigin farsíma og tengingar sem Alþingi greiðir ekki.
     4. Móttaka gesta, blóm og gjafir:
Móttaka gesta, blóm og gjafir í tengslum við starf alþingismanns. Tilefni útgjalda þarf að vera umfram það sem telja má til almennrar venju. Að hámarki má endurgreiða 5.000 kr. í hverri gjöf. Endurgreiðslur skulu ekki vera hærri en 20.000 kr. á mánuði að jafnaði.
     5. Leigubílar:
Endurgreiða má kostnað við leigubíla innan lands í tengslum við störf þingmanns.
     6. Annað:
Endurgreiða má sérfræðiaðstoð og gerð kynningarefnis, svo og ýmsan kostnað við vinnuaðstöðu á heimili eða starfsstöð þingmanns.

3. gr.
     Reglur þessar gilda einnig um úrskurð reikninga sem lagðir eru fram við uppgjör starfskostnaðar skv. 5. mgr. 9. gr. reglna um þingfararkostnað.

4. gr.
     Reglur þessar eru settir á grundvelli 2. mgr. 14. gr. laga nr. 88/1995, um þingfararkaup og þingfararkostnað, og taka gildi 1. nóv. 2006. Heimilt er þó að beita þessum reglum við úrskurð reikninga frá 1. jan. 2006. sbr. 3. gr.

(Samþykkt á fundi forsætisnefndar 16. nóv. 2006.)


     Alþingismenn geta valið um tvær leiðir við greiðslu á starfskostnaði. Ákveða skal fyrir 10. jan. ár hvert hvora leiðina þingmaðurinn velur.
     Sérstakar reglur gilda um hvaða reikningar er greiddir. Gilda þær bæði um endurgreiðslu skv. B-lið hér að neðan og reikninga sem lagðir eru fram við uppgjör staðgreiðslu skv. A-lið.

A. (föst greiðsla):
Starfskostnaður er greiddur sem föst mánaðargreiðsla, þ.e. [66.400 kr.], að frádreginni staðgreiðslu.
Alþingismenn, sem velja þessa leið, geta lagt inn til skrifstofunnar greidda reikninga fyrir starfskostnaði á árinu og verður tekið tillit til þeirra við útreikning staðgreiðslustofns í árslok.

Útfærsla: Alþingismaður fær greidda mánaðarlega fjárhæð sem nemur hámarki starfskostnaðar [66.400 kr.] að frádreginni staðgreiðslu.
     Hann leggur reglulega fram reikninga fyrir útlögðum starfskostnaði. Skrifstofan úrskurðar reikningana samkvæmt reglum forsætisnefndar og skráir þá.
     Fyrir árslok ár hvert er tekið saman yfirlit yfir framlagða og samþykkta reikninga. Fundinn er staðgreiðslustofn sem er mismunur heildarstarfskostnaðar [796.800 kr.] og samþykktra reikninga. Er sú fjárhæð færð á launaframtal ásamt upplýsingum um greidda staðgreiðslu. Þá verður ofgreidd staðgreiðsla, ef einhver er, endurgreidd alþingismanni eftir endanlega álagningu í ágúst næsta ár.

B. (endurgreiðsla reikninga):
Starfskostnaður er einungis endurgreiddur gegn framvísun greiddra reikninga.

Útfærsla: Alþingismaður leggur fram reikninga sem hann hefur lagt út fyrir og fær þá endurgreidda ef þeir falla undir reglur um starfskostnað. Séu reikningar hærri en [66.400 kr.] einhvern mánuð er greitt upp í þá, allt að
[66.400 kr.], nema þingmaðurinn eigi ónotaðar heimildir frá því fyrr á árinu.

Fréttamannafundur um rannsóknarnefndir Alþingis
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kynnti starfsemi tveggja rannsóknarnefnda Alþingis, sem eru að taka til starfa, ásamt formönnum þeirra þann 27. september 2011. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari og formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.