Utan þingflokka. Þingmaður getur sagt sig úr þingflokki á kjörtímabili og gengið til liðs við aðra þingflokka eða starfað utan þingflokka. Sérstök ákvæði eru í 79. og 80. gr. þingskapa um ræðutíma þingmanna utan þingflokka.
Borgarahreyfingin. Stjórnmálahreyfing, stofnuð 2009 í kjölfar efnahagskreppunnar á Íslandi. Sama ár leystist þingflokkur Borgarahreyfingarinnar upp þegar þrír þingmenn hennar stofnuðu Hreyfinguna en einn þingmaður hafði áður sagt sig frá Borgarahreyfingunni og sat utan þingflokka.
Þingflokkur óháðra. Þingflokkur, stofnaður í september 1998 af þrem þingmönnum Alþýðubandalags og eins utan þingflokks, einkum til samstarfs og aukinna áhrifa þingmannanna innan þings, en ekki um sérstök málefni eða framboð.
Frjálslyndi flokkurinn. Stjórnmálaflokkur, stofnaður árið 1998 að frumkvæði Sverris Hermannssonar fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fleiri fylgismanna breytinga á kvótakerfi í stjórnun fiskveiða sem var meginstefnumál flokksins.
Þingflokkur frjálslyndra hægrimanna. Þingflokkur, stofnaður 1989 af tveimur þingmönnum úr Borgaraflokknum. Þingmenn Frjálslyndra hægrimanna gengu til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins 1990.
Bandalag jafnaðarmanna. Stjórnmálasamtök, stofnuð 1983 að frumkvæði Vilmundar Gylfasonar. Bandalag jafnaðarmanna hlaut 4 þingmenn kjörna 1983. Árið 1986 leystist þingflokkur Bandalags jafnaðarmanna upp þegar þrír þingmenn þess gengu í Alþýðuflokkinn en einn í Sjálfstæðisflokkinn.
Alþýðubandalag. Stjórnmálaflokkur, formlega stofnaður 1968. Upphaflega (1956-1968) kosningabandalag Sósíalistaflokks og Málfundafélags jafnaðarmanna sem var klofningshópur úr Alþýðuflokknum.
Alþýðuflokkur. Stjórnmálaflokkur, stofnaður 1916. Í skipulagstengslum við ASÍ til 1940. Þingmenn Alþýðuflokks og Þjóðvaka stofnuðu 1996 nýjan þingflokk, þingflokk jafnaðarmanna.
Kjörbréfanefnd að störfum við upphaf 137. löggjafarþings þegar kjörbréf aðalmanna og jafnmargra varamanna voru rannsökuð. Af 27 nýjum þingmönnum höfðu 20 ekki tekið sæti á Alþingi áður.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.