Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Haraldur Benediktsson
4. þm. NV, S, HarB
Haraldur Benediktsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Alþingishús-aðgengi

Símanúmer skrifstofu Alþingis er 563 0500. Skrifstofa Alþingis er opin kl. 9-17 frá 1. okt til þingloka að vori og kl. 8-16 á sumrin. Skrifstofa í Alþingishúsinu er opin meðan þingfundir standa. Aðalinngangur í Alþingishús er um Skála.

Almenningi er heimilt að koma í Alþingishúsið, hvort heldur til að hitta þingmenn eða til að hlýða á umræður á þingpöllum. Ef gestir spyrja um þingmann færir þingvörður honum boð og þarf þingmaður að koma í anddyri ef hann vill ræða við gestinn. Þingverðir hafa eftirlit með gestum bæði á þingpöllum og annars staðar í þinghúsinu. Á meðan þingfundur stendur eru þingpallar öllum opnir. Þingpallarnir eru á þriðju hæð Alþingishússins. Gengið er inn á þingpalla frá Templarasundi.

Blaða- og fréttamenn hafa starfsaðstöðu í blaðamannastúku á þingpöllum á 3. hæð Alþingishúss. Nánari upplýsingar um aðgengi og reglur fyrir blaða- og fréttamenn er að finna á síðunni blaðamenn í Alþingishúsinu.

Reglur um aðgengi gesta að þingpöllum


Aðgangur að þingpöllum er öllum opinn. Áheyrendur á þingpöllum skulu vera kyrrir, hljóðir og gæta þess að trufla ekki störf þingsins.

Þingvörður eða lögreglumaður á vakt ákveður fjölda gesta á þingpöllum með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Hámarksfjöldi má þó aldrei vera meiri en eldvarnaeftirlit mælir með.

Gestur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna fær ekki aðgang að þingpöllum.

Gestir á þingpöllum skulu sitja í sætum sínum meðan á dvöl stendur.

Öll mótmæli og háreysti er óheimil. Óheimilt er að hylja andlit sitt.

Til að fá aðgang að þingpöllum skal afhenda þingverði eða lögreglumanni eftirfarandi: Yfirhafnir og þykkar flíkur. Höfuðfat. Töskur og poka. Lausalega hluti úr vösum sem þingvörður/lögreglumaður ákveður. Farsíma. Myndavélar og annan tækjabúnað. Drykkjarföng, matvæli og hvers konar vökva. Annað að ósk þingvarðar eða lögreglumanns.

Öll vopn og hættuleg efni eru bönnuð í þinghúsinu. Framkvæmd er öryggisleit ef ástæða er talin til. Gesti er heimilt að hafna slíkri leit en fær þá ekki aðgang að þingpöllum.

Brot á framangreindum reglum veldur því að viðkomandi er synjað um aðgang að þingpöllum eða honum vísað þaðan.

(Samþykkt á fundi forsætisnefndar 14. janúar 2009.)
Hátíðarsamkoma í Alþingishúsinu
Þess var minnst með hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu þann 8. júlí 2012 að þá voru liðin 90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.