Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Helgi Hjörvar
9. þm. RS, Sf, HHj
Helgi Hjörvar

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Heimsóknir hópa í Alþingishúsið

Upplýsingafulltrúar skrifstofu Alþingis annast heimsóknir skólabarna og annarra hópa sem kynnast vilja starfsemi Alþingis og skoða Alþingishúsið. Tekið er við pöntunum í síma 563 0500 eða í gegnum netfangið heimsoknir@althingi.is
Upplýsingafulltrúar skrifstofu Alþingis og þingverðir taka á móti þeim sem vilja skoða Alþingishúsið. Á þingtíma er nauðsynlegt að hópar jafnt sem einstaklingar komi í þinghúsið á fyrir fram ákveðnum tíma sem gengið er frá með góðum fyrirvara. Upplýsingafulltrúi tekur á móti óskum um heimsóknir, gætir þess að heimsóknir trufli ekki starfsemi í þinghúsinu og eins að fjölda gesta hverju sinni sé stillt í hóf.

Á meðan þingfundur stendur eru þingpallar öllum opnir en takmarkað svigrúm er til að sýna Alþingishúsið, bæði vegna þess að vinnufriður verður að haldast og eins af öryggisástæðum. Móttaka gesta og hópa fer að jafnaði fram utan þingfundartíma.

Skólaþing

Skólaþing er kennsluver Alþingis fyrir 8. til 10. bekki grunnskólans. Með Skólaþingi er leitast við að efla skilning og þekkingu nemenda á stjórnskipulagi okkar, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum. Til að gera leikinn sem áhugaverðastan er beitt tölvutækni og margmiðlun til að miðla upplýsingum og stýra leiknum. Miðað er við að einn bekkur taki þátt í leiknum í einu.

Til að hægt sé að leika leikinn verða minnst 12 nemendur að taka þátt og í mesta lagi 32. Heimsókn í Skólaþingið er ókeypis.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Skólaþings.
Þingsalur
Upprunalegir litir og kalkskreytingar í lofti prýða þingsalinn.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.