Skrifstofa Alþingis gefur út margvíslegt upplýsingaefni um þingið fyrir almenning en viðamesta útgáfan er á vef Alþingis. Í margmiðlunarefni, sem er á vefnum, er yfirlit yfir sögu Alþingis og kynning á starfsháttum þingsins.
Eftir hverjar alþingiskosningar eru gefnir út tveir kynningarbæklingar. Í stærri bæklingnum er gerð grein fyrir starfsemi þingsins og sögu Alþingis og þinghússins. Í minni bæklingnum er stiklað á stóru um sömu atriði. Bæklingarnir eru einnig til á ensku og dönsku
.
Á þingpöllum liggur frammi upplýsingaörk um störfin í þingsalnum ásamt lista yfir þingmenn og skýringum á ýmsum hugtökum er varða þinghaldið.
Eftir hverjar alþingiskosningar er gefin út Handbók Alþingis með æviágripum alþingismanna, úrslitum kosninga, ýmsum tölfræðilegum upplýsingum og öðrum fróðleik um þingið.
Á hverju hausti er gefin út starfsáætlun þingsins og Ársskýrsla Alþingis er gefin út að loknu hverju þingi. Í henni er gefið yfirlit yfir störf og rekstur þingsins.
Upplýsingaefnið fæst hjá upplýsingafulltrúa í síma 563 0645, netfang almannatengsl@althingi.is eða þingvörðum (s. 563 0570).
Málverk af Halldóri Blöndal, fyrrverandi forseta Alþingis, eftir Kristinn G. Jóhannsson listmálara var afhjúpað í Alþingishúsinu 24. ágúst 2010.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.