Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Silja Dögg Gunnarsdóttir
3. þm. SU, F, SilG
Silja Dögg Gunnarsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Upplýsingar um þingstörfin

Ýmsar leiðir eru til að kynna sér störf Alþingis. Þingskjöl og ræður eru aðgengileg á vef Alþingis. Þingskjöl birtast þar eftir að þeim hefur verið útbýtt í þingsalnum. Ræður eru birtar á vefnum eftir fyrsta yfirlestur. Upplýsingar um nefndastarf eru veittar hjá nefndasviði, í síma 563 0420. Öll þingmál eru einnig fáanleg í skjalaafgreiðslu Alþingis í Þórshamri og þar eru Alþingistíðindi einnig afgreidd.

Skrifstofa Alþingis veitir upplýsingar um dagskrá þingfunda og stöðu þingmála í síma 563 0500 og dagskrá Alþingis er birt á síðu 230 í textavarpi sjónvarpsins.

Á meðan þingfundur stendur eru þingpallar öllum opnir. Þingpallarnir eru á þriðju hæð Alþingishússins. Gengið er inn á þingpallana frá Templarasundi.

Sjónvarpað er beint frá þingfundum á rás ríkissjónvarpsins frá því að þingfundur hefst þar til regluleg dagskrá sjónvarpsins hefst um kl. 17. Standi þingfundur lengur er honum sjónvarpað daginn eftir og hefst sú útsending kl. 9.30. Sjónvarpað er óslitið frá þingfundum á breiðbandinu. Enn fremur eru beinar útsendingar frá þingfundum á heimasíðu Alþingis.

Alþingisgarðurinn og suðurhlið þinghússins
Alþingisgarðurinn og suðurhlið þinghússins. Hafist var handa um framkvæmdir í garðinum árið 1893. Kringlan var byggð við húsið 1908.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.