Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Brynjar Þór Níelsson
5. þm. RN, S, BN
Brynjar Þór Níelsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Reglur um aðgengi að þingpöllum

Aðgangur að þingpöllum er öllum opinn. Áheyrendur á þingpöllum skulu vera kyrrir, hljóðir og gæta þess að trufla ekki störf þingsins.

Þingvörður eða lögreglumaður á vakt ákveður fjölda gesta á þingpöllum með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Hámarksfjöldi má þó aldrei vera meiri en eldvarnaeftirlit mælir með.

Gestur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna fær ekki aðgang að þingpöllum.

Gestir á þingpöllum skulu sitja í sætum sínum meðan á dvöl stendur.

Öll mótmæli og háreysti er óheimil. Óheimilt er að hylja andlit sitt.

Til að fá aðgang að þingpöllum skal afhenda þingverði eða lögreglumanni eftirfarandi: Yfirhafnir og þykkar flíkur. Höfuðfat. Töskur og poka. Lausalega hluti úr vösum sem þingvörður/lögreglumaður ákveður. Farsíma. Myndavélar og annan tækjabúnað. Drykkjarföng, matvæli og hvers konar vökva. Annað að ósk þingvarðar eða lögreglumanns.

Öll vopn og hættuleg efni eru bönnuð í þinghúsinu. Framkvæmd er öryggisleit ef ástæða er talin til. Gesti er heimilt að hafna slíkri leit en fær þá ekki aðgang að þingpöllum.

Brot á framangreindum reglum veldur því að viðkomandi er synjað um aðgang að þingpöllum eða honum vísað þaðan.

(Samþykkt á fundi forsætisnefndar 14. janúar 2009.)

Opið hús 17. júní 2011
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands, sem stofnaður var í þinghúsinu, einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst. Rúmlega 3000 gestir komu í heimsókn.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.