Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Magnús Orri Schram
7. þm. SV, Sf, MSch
Magnús Orri Schram

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Tilvísanir í Alþingistíðindi

Alþingistíðindi eru gefin út í tveimur hlutum. Annars vegar eru þingskjöl (A) og hins vegar eru umræður (B).

Vefútgáfa Alþingistíðinda.
Á vefsíðu Alþingis eru birtar þingræður og þingskjöl.
Þegar vísað er í þingræðu á vef Alþingis, þarf að geta þess, hvenær upplýsingarnar voru sóttar á vefinn vegna þess að hugsanlegt er að einhverjar breytingar verði gerðar á textanum.

Tilvísun til vefútgáfu frumvarps um jarðhitaréttindi á 122. löggþ. yrði þannig:
Frumvarp til laga um jarðhitaréttindi, þskj. 56, 56. mál.
Vefútgáfa Alþingistíðinda, slóð:
http://www.althingi.is/altext/122/s/0056.html.
[Sótt á vefinn 24.11.1998].

Bráðabirgðaútgáfa þingræðna er send út á vefinn jafnskjótt og ræður hafa verið ritaðar. Eins og þar kemur fram er óheimilt að vísa til bráðabirgðaútgáfu.
Tilvísun í vefútgáfu af ræðu Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi um málefni LÍN yrði þannig:
Vefútgáfa Alþingistíðinda, slóð:
http://www.althingi.is/altext/122/10/r09103704.sgml.
[Sótt á vefinn 24.11.1998].

Þingskjöl (A).
Þingskjöl eru tölusett í hlaupandi röð frá 1 og áfram eftir tölu þeirra á hverju löggjafarþingi. Þingskjal er prentað plagg sem er bókað í skjalaskrá Alþingis og útbýtt formlega meðal þingmanna á þingfundi.
Enn fremur fær hvert þingmál málsnúmer sem hvert þingskjal um málið er auðkennt með. Fyrsta mál, sem lagt er fram á hverju löggjafarþingi, verður þingmál númer 1, næsta verður þingmál númer 2 o.s.frv. Í hverju þingmáli er eitt þingskjal eða fleiri og hefur hvert þeirra sérstakt þingskjalsnúmer og málsnúmerið auk þess. Hér á eftir fara dæmi um hvernig vísa má til þingskjala.

Þingskjöl prentuð í endanlegri útgáfu Alþingistíðinda.
Frumvarp til laga um jarðhitaréttindi, þingskjal 56.
Alþingistíðindi 1997–98, 122. löggjafarþing. A. Þingskjöl, bls. 745 –749.
Skammstafað: Frv. til laga um jarðitaréttindi, þskj. 56. Alþtíð. 1997–98, 122. lögþ. A: 745–749.

Sérprentuð þingskjöl (lausaskjöl):
Frumvarp til laga um jarðhitaréttindi, 56. mál, þskj. 56. Alþingi 1997–98, 122. löggjafarþing.
Skammstafað: Frv. til laga um jarðhitaréttindi, 56. mál, þskj. 56. Alþingi 1997–98, 122. lögþ.

Umræður (B).
Í B-hluta Alþingistíðinda eru umræður sem fram fóru í þinginu og er þeim skipað í tímaröð eftir því hvenær þær fóru fram. Tölutilvísanir í umræður í efnisyfirliti Alþingistíðinda merkja dálkatal. Hér á eftir fer dæmi um hvernig vísa má til umræðna.

Í umræðum utan dagskrár 9. október 1997 um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra: „Það er að koma í ljós á grundvelli stjórnsýslulaga og annarra reglna sem gilda að nauðsynlegt er að fara ofan í margar starfsaðferðir sem gilt hafa í okkar stjórnkerfi og gera þær skýrari."
Tilvísun: Alþingistíðindi 1997– 98, 122. löggjafarþing B. Umræður: 266–267.
Skammstafað: Alþt. 1997–98, 122. lögþ. B.: 266–267.

Í efnisyfirliti Alþingistíðinda er vísað í umræður í B-hluta með skammstöfuninni umr.: og dálkatal sett þar fyrir aftan. Einfaldast er að vísa í B-hluta þannig: Alþingistíðindi 1997–1998. 122. lögþ. B. Umr.: 266–267.

     

Heimsókn utanríkisráðherra Palestínu
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir tók á móti utanríkisráðherra Palestínu í Alþingishúsinu 15. desember 2011, ráðherrann átti einnig fund með utanríkismálanefnd Alþingis.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.