Í desember 2008 samþykkti Alþingi þingsályktun um að fela ríkisstjórninni að
leiða til lykta samninga varðandi ábyrgð ríkissjóðs á innstæðutryggingum vegna
innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á Evrópska efnahagssvæðinu.
Hér hefur verið safnað saman efni sem tengist lögunum sem samþykkt voru á
Alþingi 16. febrúar og efni tengt lögunum sem samþykkt voru í ágúst 2009 (lög
nr. 96/2009) og lögunum sem Alþingi samþykkti í árslok 2009 (lög nr. 1/2010, um
breytingu á fyrri lögunum) og voru felld í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010.
Finna má alla umfjöllun um málin á Alþingi, svo sem ræður á þingfundum og
þingskjöl, sem og erindi og umsagnir sem bárust fastanefndum þingsins við
afgreiðslu málanna.
Einnig eru hér samsvarandi gögn tengd umfjöllun um þingsályktun frá 5.
desember 2008 um samninga um ábyrgð ríkissjóðs vegna innstæðna í útibúum
íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu (þingsályktun nr. 2/136).
Loks eru hér tenglar í gögn og opinbera vefi sem tengjast umfjöllun um
Icesave-málið og þjóðaratkvæðagreiðslu um lög nr. 13/2011 og
þjóðaratkvæðagreiðsluna um lög nr. 1/2010.
Frumvarp til laga á 139. þingi, samþykkt á Alþingi 16.
febrúar 2011.
Þess var minnst með hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu þann 8. júlí 2012 að þá voru liðin 90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.