Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)
|
Opnir nefndafundir
|
Nefndarritarar:
Stígur Stefánsson stjórnmálafræðingur,
Þröstur Freyr Gylfason stjórnmálafræðingur,
Fastur fundartími nefndarinnar er á þriðjudögum kl. 9.00-12.00 og fimmtudögum kl. 8.30-10.30.
Málaflokkar
Nefndin fjallar um samskipti við erlend ríki og alþjóðastofnanir, varnar- og öryggismál, útflutningsverslun, málefni Evrópska efnahagssvæðisins og þróunarmál, svo og utanríkis- og alþjóðamál almennt. Enn fremur fjallar nefndin um skýrslur alþjóðanefnda sem og skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál.
Samkvæmt 24.
gr. þingskapa skal utanríkismálanefnd vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um
meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík
mál, jafnt á þingtíma sem í þinghléum. Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um
þá vitneskju sem þeir fá í nefndinni ef formaður eða ráðherra kveður svo á.
Kosning
Kosið var í nefndina við upphaf 140. þings vegna breytinga á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, sem samþykktar voru á Alþingi 11. júní 2011. Að öllu jöfnu eru kosnir 9
þingmenn og 9 varamenn í utanríkismálanefnd á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.
Starfshópur um Evrópumál
Í júlí 2009 skipaði utanríkismálanefnd sérstakan starfshóp um Evrópumál í
samræmi við
nefndarálit meiri hluta
nefndarinnar um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Starfshópnum, sem skipaður er einum fulltrúa hvers stjórnmálaflokks, er ætlað að
funda reglubundið með utanríkisráðherra og samninganefnd Íslands auk þess að
sitja í samráðshópi ríkisstjórnarinnar og hagsmunaaðila.
Þingleg meðferð EES-mála
Utanríkismálanefnd hefur yfirumsjón með umfjöllun nefnda Alþingis um EES-mál.
Umsagnir um þingmál
Svör við umsagnarbeiðnum og
athugasemdir um þingmál (sjá
umsagnir um
þingmál) má senda í tölvupósti en frumrit umsagnar þarf jafnframt að berast
til skjalaskráningar á nefndasviði skrifstofu Alþingis, Austurstræti 8-10, 150
Reykjavík. Netfangið er
nefndasvid@althingi.is. Framvegis verða
beiðnir fastanefnda um umsagnir um þingmál aðeins sendar í tölvupósti.
Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin
frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni
nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill
eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.
Sjá
leiðbeiningar um ritun umsagna.