- Meginregla þingskapa um útbýtingu þingskjala er að hún fer fram á þingfundi með tilkynningu forseta.
- Þingskjöl eru einnig birt á vef og lögð fram í útbýtingarherbergi eftir því sem þau berast meðan á
þingfundi stendur og eru opinber án þess að um þau sé tilkynnt í hvert sinn. Í upphafi þingfundar og
í lok hans les forseti lista yfir útbýtt þingskjöl.
- Utan þingfunda má einnig, ef nauðsyn ber til, útbýta þingskjölum með því að birta þau á vef, fram til klukkan 8 síðdegis.
- Ef þingskjölum er útbýtt utan þingfundar er þingmönnum tilkynnt það annaðhvort í tölvupósti eða með
sms-skilaboðum. Jafnframt birtist undir hlekknum tilkynningar á heimasíðu Alþingis að nýjum þingskjölum
hafi verið útbýtt utan þingfundar og vísað í hlekk sem sýnir nýjustu þingskjöl.
Dæmi:
19.09.2011
Þingskjölum útbýtt utan þingfundar
Þingskjölum var útbýtt utan þingfundar kl. xxx. dagsetning.
- Í formlegum þinghléum er miðað við að hægt sé að útbýta svörum við fyrirspurnum og skýrslum sem Alþingi hefur samþykkt að biðja um.
Úr nýjum þingsköpum:
60. gr. 4. mgr.:
4. mgr. Á milli þingfunda má birta þingskjöl á heimasíðu Alþingis og telst sú birting jafngilda útbýtingu á þingfundi.
2Forseti setur nánari reglur um útbýtingu þingskjala á vef þingsins.
3Sama gildir um tilkynningar um þingsetu varamanna.
4Allar tilkynningar, sem birtast fyrst á vef þingsins samkvæmt þessari málsgrein, skal forseti endurtaka við upphaf næsta þingfundar eftir vefbirtingu.