Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins


Þátttöku Alþingis á Þingi öryggis- og varnarmála í Evrópu (VES þinginu) var hætt frá og með 140. löggjafarþingi.

Þing öryggis- og varnarmála í Evrópu VES-þingið
(Assembly of WEU - The Interparliamentary European Security and Defence Assembly)


Markmið, uppbygging og starfsemi þings öryggis- og varnarmála í Evrópu (VES-þingsins)

Vestur-Evrópusambandið (VES) er varnarbandalag Evrópuríkja sem stofnað var árið 1954. Bandalagið byggir á Brussels-samningnum svokallaða frá árinu 1948 um sameiginlegar varnir aðildarríkjanna og samstarf þeirra um efnahags-, félags- og menningarmál. Full aðildarríki sambandsins eru alls 10 talsins, þ.e. Belgía, Bretland, Frakkland, Grikkland, Holland, Ítalía, Lúxemborg, Portúgal, Spánn og Þýskaland. VES-þingið var sett á laggirnar með Parísarsáttmálanum árið 1954. Sambandsaðild (e. affiliate member) eiga átta ný ESB-ríki, Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Aukaaðild (e. associate member) að þinginu eiga þau þrjú evrópsku aðildarríki NATO sem ekki eiga aðild að ESB, þ.e. Ísland, Noregur og Tyrkland. Sambandsaukaaðild (e. affiliate associate member) að VES-þinginu eiga Búlgaría og Rúmenía. Áheyrnaraðild (e. observer countries) eiga þau ESB-ríki sem fylgt hafa hlutleysisstefnu í utanríkismálum, Austurríki, Finnland, Írland og Svíþjóð, auk Danmerkur. Þá hafa tvö ný ESB-ríki stöðuna sambandsáheyrnaraðili (e. affiliate observer countries), þ.e. Kýpur og Malta. Króatía hefur samstarfssamning (e. affiliate associate partner country) við VES-þingið og fulltrúar þjóðþinga Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu, Makedóníu, Serbíu og Svartfjallalands hafa stöðu sérlegra gesta (e. special guests). Loks hafa fulltrúar rússneska þingsins og úkraínska þingsins stöðu fastagesta (e. permanent guests).

Markmið VES er að tryggja varnir Evrópuríkja samkvæmt V-lið Brussel-samningsins (stofnsamnings VES). Starfsemi og umræður á VES-þinginu má greina í þrjá meginflokka. Í fyrsta lagi er þingið vettvangur þingmannavíddar Vestur-Evrópusambandsins og skv. 9. gr. endurskoðaða Brussel-sáttmálans frá 1954 er VES-þingið ráðherraráði VES innan handar og ráðgefandi. VES-þingið hefur eftirlit með framkvæmd sameiginlegra varnarskuldbindinga sem kveðið er á um í 5. gr. sáttmálans. Í öðru lagi hefur VES-þingið haft það hlutverk, í kjölfar yfirtöku Evrópusambandsins á verkefnum VES árið 2000, að vera tímabundið öryggis- og varnarmálaþing Evrópu og vettvangur þinglegrar meðferðar á sameiginlegri stefnu ESB í öryggis- og varnarmálum. Í þriðja lagi fjallar VES-þingið um milliríkjasamstarf Evrópuríkja á sviði hergagnaframleiðslu og rannsókna- og þróunarstarfs í hergögnum.

Á VES-þinginu sitja 370 fulltrúar. Það er samráðsvettvangur þjóðþinga aðildarríkjanna í öryggismálum og kemur saman tvisvar á ári, í júní og desember. Fjöldi fulltrúa fer eftir stærð þjóða og hefur Ísland sem aukaaðildarríki þrjá fulltrúa. Aukaaðilar geta samkvæmt núverandi reglum þingsins tekið virkan þátt í störfum þess. Ísland fékk aukaaðild að VES árið 1992 og var hún formlega staðfest í mars 1995. Aukaaðildin tryggir íslenskum fulltrúum tillögurétt, fullt málfrelsi á þingfundum og rétt til að taka þátt í kosningu framkvæmdastjórnar. Í flestum tilfellum tryggir aukaaðildin atkvæðis- og tillögurétt í nefndarstarfi.

Innan þingsins starfa sex málefnanefndir auk forsætisnefndar og stjórnarnefndar. Málefnanefndirnar skila skýrslum sem eru ræddar og ályktað um á þingfundum. Hlutverk þingsins er því að álykta, skora á og beina fyrirspurnum til ráðherraráðs VES. Þingið getur einnig beint tilmælum eða fyrirspurnum til þjóðþinga, fjölþjóðastofnana og ríkisstjórna. Skjöl þingsins eru gefin út á ensku og frönsku en umræður fara fram á tungumálum aðildarríkjanna. Aðsetur VES-þingsins er í París.

Þróunin í átt að sjálfstæðum hernaðarmætti ESB, hefur gert það að verkum að hlutverk VES í öryggis- og varnarmálum álfunnar er nokkru minna en áður í ljósi þess að stofnanir öryggis- og varnarmála álfunnar hafa færst á ábyrgð ESB. Þrátt fyrir umfangsmiklar stofnana- og skipulagsbreytingar í Evrópu á undanförnum árum er VES-þingið enn sem komið er eina evrópska þingmannasamkundan sem gefur þjóðkjörnum þingmönnum færi á að fylgjast með og ræða sameiginleg öryggis- og varnarmál álfunnar.

Frekari upplýsingar um VES-þingið má finna á heimasíðu þess á slóðinni http://www.assembly-weu.org.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.