Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Sigrún Magnúsdóttir
7. þm. RN, F, SigrM
Sigrún Magnúsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Velferðarnefnd

Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)


Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson lögfræðingur,

Fastur fundartími nefndarinnar er á mánudögum kl. 9.30-11.30 og miðvikudögum kl. 9.00-12.00.

Málaflokkar

Nefndin fjallar um sjúkra- og lífeyristryggingar, félagsþjónustu, málefni barna, málefni aldraðra og málefni fatlaðra, húsnæðismál, vinnumarkaðsmál og heilbrigðisþjónustu.

Kosning

Kosið er í nefndir á fyrsta fundi Alþingis að afloknum alþingiskosningum. Að öllu jöfnu eru 9 þingmenn kosnir á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.

Umsagnir um þingmál

Vakin er athygli á því að frá og með 142. löggjafarþingi verður nefndastarf fastanefnda Alþingis rafrænt. Því er óskað eftir að svör við umsagnarbeiðnum og athugasemdir um þingmál (sjá umsagnir um þingmál) verði send á rafrænu formi á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.

Sjá leiðbeiningar um ritun umsagna.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.