1. gr.
Reikningar.
Einungis eru greiddir eða endurgreiddir reikningar sem eru löglega gerðir,
eru frá þriðja aðila, eru skráðir á nafn og kennitölu aðstoðarmannsins, nema annað leiði af þessum reglum.
2. gr.
Ferðakostnaður.
Greiddur er ferðakostnaður, að hámarki sem svarar 6.000 km á ári, skv. akstursbók.
Endurgreiðslu skv. þessum lið má nýta að hluta til eftirtalinna atriða enda fari
heildarupphæð ferðakostnaðar ekki yfir viðmiðun í 1. mgr. og reikningur komi frá þriðja aðila:
- flug- og ferjuferða innan lands,
- kostnaðar við leigubíla og bílaleigu í tengslum við flugferðir,
- gistingar innan lands í ferðum á vegum alþingismannsins,
- millilandaflugs og dagpeninga erlendis skv. reglum fjármálaráðuneytisins
um dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis. - Þessi töluliður gildir eingöngu um aðstoðarmenn
formanna flokka.
3. gr.
Farsími.
Styrkur á móti farsímakostnaði aðstoðarmanns er 60 þús. kr. á ári.
Alþingi greiðir mánaðarlega 5.000 kr. inn á farsímareikning aðstoðarmanns.
Ef aðstoðarmaður fullnýtir ekki farsímakostnað er heimilt að færa kostnað á milli mánaða.
Þá þarf aðstoðarmaðurinn að senda skrifstofu Alþingis reikninga og uppgjör er gert í lok árs.
4. gr.
Annar rekstrarkostnaður.
Greiðslur fyrir annan útlagðan rekstrarkostnað í tengslum við starf aðstoðarmanns
fyrir alþingismann er að hámarki 420 þús. kr. á ári. Sé aðstoðarmaður í starfi hluta úr ári skerðist
greiðsluheimildin hlutfallslega.
5. gr.
Húsaleiga og starfsaðstaða.
Leiga fyrir skrifstofu aðstoðarmanns í kjördæmi alþingismannsins er greidd
eða endurgreidd skv. reikningi frá húseiganda, innan greiðsluheimildar skv. 4. gr.
Heimilt er að greiða aðstoðarmanni leigu eftir reikningi frá honum fyrir
tilgreinda starfsaðstöðu í kjördæmi þingmannsins sem aðstoðarmaðurinn á eða leigir og notar til starfa sinna.
Hámark greiðslu skv. þessari mgr. er þá 15.000 kr. á mánuði.
Skrifstofa Alþingis getur skoðað eða tekið út skrifstofu eða starfsaðstöðu
aðstoðarmanns sem hún greiðir leigu fyrir. Leigufjárhæð skal vera í samræmi við húsaleigu á svæðinu og
reikningar gefnir út af eiganda húsnæðisins sem er þannig framtalsskyldur fyrir tekjunum.
Upplýsingar um starfsaðstöðu aðstoðarmanns og síma eru birtar á vef Alþingis.
Á þann stað eru send öll skjöl frá Alþingi sem eiga að berast aðstoðarmanni.
6. gr.
Skrifstofubúnaður, ritföng, nettenging og póstburðargjöld.
Til annars rekstrarkostnaðar telst enn fremur:
- Viðhald og viðgerðir á fartölvum, farsímum og öðrum skrifstofubúnaði.
- Kostnaður við fundi, ráðstefnur og fyrirlestra sem aðstoðarmaður sækir vegna
starfa sinna og hann þarf að greiða fyrir (fundar-, námskeiðs- eða ráðstefnugjöld).
7. gr.
Fastlínusími á skrifstofu.
Skrifstofa Alþingis greiðir fyrir notkun á fastlínusíma í starfsaðstöðu
aðstoðarmanns að hámarki 3.000. kr. mánaðarlega.
(Skrifstofa Alþingis, júní 2008.)
Fylgiskjal.
7. og 8. gr. reglna forsætisnefndar um aðstoðarmenn.
7. gr.
Aðstoðarmaður alþingismanns, sbr. 2. gr., fær, auk fastra launa skv. 5. gr.,
eftirfarandi greiðslur hvern mánuð eða hluta úr mánuði:
- Greiðslu fyrir ferðakostnaði, að hámarki sem svarar 6.000 km á ári,
skv. akstursbók. Endurgreiðslu skv. þessum lið má nýta að hluta til flug- og ferjuferða.
- Styrk á móti farsímakostnaði, 60 þús. kr. á ári.
- Greiðslu fyrir öðrum útlögðum rekstrarkostnaði, þar á meðal fyrir
leigu á skrifstofu í kjördæminu þar sem aðstoðarmaðurinn starfar, að hámarki 420 þús. kr. á ári.
Útlagður kostnaður verður endurgreiddur samkvæmt framlögðum reikningum eftir nánari vinnureglum sem
skrifstofa Alþingis setur.
8. gr.
Aðstoðarmaður alþingismanns, sbr. 2. gr., fær fartölvu að láni frá Alþingi,
ef hann óskar, er hann tekur við störfum. Með fartölvunni skal fylgja sami staðalbúnaður og alþingismenn fá.
Aðstoðarmaður formanns velur hvort hann hefur borðtölvu eða fartölvu á skrifstofu sinni.
Aðstoðarmaður fær endurgreiddan kostnað við kaup á farsíma í þágu starfs
síns, að hámarki 25 þús. kr., er hann tekur við störfum.
Skrifstofa Alþingis greiðir fyrir notkun á fastlínusíma á skrifstofu
aðstoðarmanns. Skrifstofa Alþingis ákveður hámark mánaðarlegs símkostnaðar skv. þessari málsgrein og skal
tilkynna það aðstoðarmönnum og alþingismönnum.
Aðstoðarmaður á rétt á sömu sérhæfðu þjónustu og alþingismenn fá frá
skrifstofu Alþingis, eftir því sem við á, þar á meðal frá upplýsinga- og rannsóknarþjónustu skrifstofunnar,
leiðbeiningar um tölvunotkun, aðgang að mötuneyti meðan þeir dveljast í Reykjavík o.s.frv. Skrifstofustjóri
sker úr álitamálum sem rísa kunna um þessi efni.
Viðhald og viðgerðir á fartölvum, farsímum og öðrum skrifstofubúnaði,
sem aðstoðarmenn hafa, skulu þeir annast sjálfir.
Reglur um aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka og alþingismanna úr Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum.