Í 9. gr. þingskapa segir að forseti Alþingis hafi „æðsta vald í stjórnsýslu þess“.
Skrifstofan heyrir því undir hann en skrifstofustjóri Alþingis stjórnar henni í umboði
forseta. Skrifstofustjóri er ráðinn af forsætisnefnd og hann annast ráðningu annarra
starfsmanna skrifstofunnar. Aðsetur skrifstofustjóra er á 2. hæð Alþingishússins og
á 2. hæð Blöndahlshúss (Kirkjustræti 8b).
Skrifstofustjóra til aðstoðar eru þrír aðstoðarskrifstofustjórar (rekstur, stjórnsýsla,
þingstörf) sem ásamt honum mynda yfirstjórn skrifstofunnar.
Aðstoðarskrifstofustjóri sem hefur umsjón með almennum rekstri þingsins er jafnframt
staðgengill skrifstofustjóra. Hann hefur umsjón með fjármálum, framkvæmdum,
rekstri og starfsmannamálum. Aðsetur hans er á 2. hæð Kristjánshúss (Kirkjustræti
10).
Aðstoðarskrifstofustjóri sem annast skipulag þingstarfanna hefur umsjón með
þeirri starfsemi skrifstofunnar sem snýr að hinu eiginlega þingstarfi. Í því felst m.a.
skipulagning þinghaldsins og afgreiðsla þingmála. Hann hefur aðsetur á 2. hæð Alþingishússins.
Aðstoðarskrifstofustjóri sem hefur með almenna stjórnsýslu skrifstofunnar að gera hefur
umsjón með þjónustu við forseta og alþjóðasamstarfi Alþingis ásamt upplýsinga- og útgáfumálum þingsins. Hann hefur aðsetur á 2. hæð Blöndahlshúss.
Undir aðstoðarskrifstofustjóra heyra samsvarandi þrjár skrifstofur sem stýrt er af
forstöðumönnum. Skrifstofa Alþingis skiptist að öðru leyti í þrjú kjarnasvið og heyra
forstöðumenn þeirra beint undir skrifstofustjóra.
Yfirstjórn skipa
Faxnúmer eru merkt með x fyrir framan númerið.
| Nafn |
Sími |
| Skrifstofa |
|
Helgi Bernódusson skrifstofustjóri
|
563-0921 |
|
Kirkjustræti 10 |
|
Karl Magnús Kristjánsson, aðstoðarskrifstofustjóri rekstur
|
563-0927 |
|
Kirkjustræti 10 |
|
Vigdís Jónsdóttir, aðstoðarskrifstofustjóri þingstörf
|
563-0522 |
|
Alþingishúsi |
|
Þorsteinn Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóri stjórnsýsla
|
563-0932 |
|
Kirkjustræti 10 |